Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 46
26 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
JOHN STUART MILL LÉST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1873.
„Ég hef lært að nálgast
hamingjuna með því að
draga úr þörfum frekar
en að reyna að fullnægja
þeim.“
John Stuart Mill var frjáls-
lyndur breskur heimspeking-
ur og einn frægasti málsvari
nytjastefnu. Hann ritaði Frels-
ið árið 1859 og Um kúgun
kvenna árið 1869.
Barnavöruverslunin Fífa fagnaði þrjá-
tíu ára afmæli í fyrra en afmælishald-
inu var slegið á frest þegar kreppan
skall á. Nú hafa eigendurnir, systurn-
ar Dagmar og Ásdís Pétursdætur og
móðir þeirra, Anna Sigríður Einars-
dóttir, tekið upp þráðinn á ný og halda
fjögurra daga afmælishátíð. Hún hófst
í gær og stendur fram á sunnudag.
Blaðamaður náði tali af Dagmar þar
sem hún var stödd í útvarpsstúdíói
ásamt börnum sínum tveimur, systur
sinni og börnum hennar þremur. Börn-
in höfðu þá nýlokið við að syngja inn
afmælissönginn sem mun svo hljóma
í útvarpsauglýsingu verslunarinnar.
Barnalán þeirra systra varð einmitt
til þess að þær ákváðu árið 2006 að
kaupa Fífu. „Okkur langaði til að gera
eitthvað saman og þar sem við erum
báðar ríkar af börnum og höfðum
lifað mikið og hrærst í kringum þau
lá þetta beint við. Við keyptum versl-
unina ásamt móður okkar af hjónun-
um Þórunni Sigurðardóttur og Magn-
úsi Ólafssyni sem höfðu rekið hana frá
árinu 1984. Þetta er fjölskyldufyrir-
tæki með áherslu á persónulega þjón-
ustu,“ segir Dagmar.
Þær mæðgur láta ekki deigan síga í
kreppunni enda fæðast börn í kreppum
líkt og endranær. „Það gengur í raun
vonum framar hjá okkur enda vorum
við ákveðnar í að fara ekki í vörn held-
ur í sókn. Við erum duglegar að panta
vörur og eigum nóg til en það hefur
gefið góða raun.“
Fífa er umboðsaðili fyrir þekkt vöru-
merki eins og Brio, Simo, Maxi-Cosi,
Quinny, Baby Björn og Stokke en þau
merki kunna margir að meta. „Síðan
höfum við svo gaman af þessu og
förum glaðar í vinnuna á hverjum degi.
Það er líka mjög ánægjulegt að fylgjast
með öllum óléttu konunum og foreldr-
unum sem til okkar koma. Oft getum
við miðlað af okkar eigin reynslu, sem
er mjög gefandi.“
Í tilefni afmælisins hafa mæðgurn-
ar opnað nýja heimasíðu, breytt merki
verslunarinnar og eflt vefverslunina
til muna. „Þá erum við með fullt af af-
mælistilboðum og ýmsum uppákom-
um alla dagana. Við fáum til okkar
brjóstagjafarráðgjafa sem verður með
ráðgjöf fyrir mjólkandi mæður, kynn-
ingu á mömmu- og meðgönguleikfimi
frá Fullfrísk, sjúkraþjálfara sem veit-
ir ráðgjöf um hreyfiþroska barna og
leiðbeinir foreldrum um líkamsbeit-
ingu við umönnun, töframann, happa-
drætti, blöðrur og fleira.“
Nánari upplýsingar má finna á www.
fifa.is en verslunin er til húsa að Bílds-
höfða 20.
vera@frettabladid.is
FÍFA: FAGNAR 30 ÁRA AFMÆLI MEÐ FJÖGURRA DAGA AFMÆLISHÁTÍÐ
Glaðar í vinnuna á hverjum degi
ÁVALLT Á KAFI Í BARNASTÚSSI Systurnar umkringdar Doomoo-vörum sem eru afar vinsælar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ragnar Hermannsson
frá Flatey á Skjálfanda,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn
9. maí kl. 13.00.
Sigrún Ragnarsdóttir Gestur Gunnarsson
Helga Ragnarsdóttir Kristinn Guðni Hrólfsson
Hermann Ragnarsson Dómhildur Antonsdóttir
Erla Ragnarsdóttir Ómar Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Sigríður
Þórólfsdóttir
dvalarheimilinu Höfða,
áður til heimilis að Háholti 31, Akranesi,
lést aðfaranótt 5. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Þórólfur Ævar Sigurðsson Kristín Eyjólfsdóttir
Guðjón Heimir Sigurðsson Valgerður Bragadóttir
Halldór Bragi Sigurðsson Sigurlaug Brynjólfsdóttir
Guðrún Agnes Sigurðardóttir Tryggvi Ásgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Finnbogason
frá Lágafelli,
Gilsbakka 2, Hvolsvelli,
lést á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli þriðjudaginn 5. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Auður Hermannsdóttir
Vilborg Magnúsdóttir Gunnar Hermannsson
Finnbogi Magnússon Þórey Pálsdóttir
Ragnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Erlendsson
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
vinur,
Jón Hallsson
Silfrastöðum í Skagafirði,
sem lést mánudaginn 27. apríl sl. verður jarðsunginn
frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 9. maí kl. 14.00.
Ólafur Íshólm Jónsson Erla Gunnlaugsdóttir
Auður Inga Ólafsdóttir Guðlaugur Stefánsson
Ásdís Íshólm Ólafsdóttir Ólafur Gunnar Pétursson
Dagný Björk Ólafsdóttir Gunnar Bragi Þorsteinsson
Elfa Íshólm Ólafsdóttir Halldór Halldórsson
Harpa Íshólm Ólafsdóttir Gissur Kolbeinsson
og barnabarnabörn.
Jóhannes Jóhannsson og Þóra Jóhannesdóttir
Helga Jóhannesdóttir og Hrefna Jóhannesdóttir og
fjölskyldur.
Elskulegur sambýlismaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Sigfús Þórðarson
fv. bankastarfsmaður á Selfossi,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 5. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erla Sigurjónsdóttir
Kristín Sigfúsdóttir Yngvi Karl Jónsson
Anna Þórný Sigfúsdóttir Stefán Þorleifsson
Þórarinn Sigfússon
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móðursystur,
Ingibjargar Björnsdóttur
ljósmóður, Víðihlíð, Dvalarheimilinu Hlíð
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar fyrir góða
umönnun. Guð veri með ykkur öllum.
Aðalheiður Ingibjörg Mikaelsdóttir
Rósa Björg Andrésdóttir
MERKISATBURÐIR
1636 Heklueldur kemur upp.
1860 Kötlugos hefst. Þetta er
með minni gosum og
verður lítið tjón.
1933 Mohandas Gandhi hefur
þriggja vikna hungurverk-
fall til þess að mótmæla
kúgun Breta í Indlandi.
1945 Síðari heimsstyrjöldinni
lýkur með uppgjöf Þjóð-
verja.
1948 Tröllafoss kemur til lands-
ins. Hann er þá stærsta
skip sem Íslendingar hafa
eignast.
1979 Félag frjálshyggjumanna
er stofnað á Íslandi.
1996 Stjórnarskrá Suður-Afr-
íku tekur gildi. Hún þykir
nokkuð nýstárleg því hún
tryggir ríkisborgurum víð-
tæk réttindi og valddreif-
ingu.
Þennan dag árið 1970 kom Let It Be út,
þrettánda og síðasta breiðskífa Bítlanna, en
það var eftir að hljómsveitin hafði lagt upp
laupana.
Vinna við plötuna hófst í janúar 1969 og
var ætlun Bítlanna upphaflega að láta eina
töku nægja fyrir hvert lag og sleppa öllum
yfirtökum. Æfingarnar og upptökurnar voru
kvikmyndaðar og þar á meðal síðustu tón-
leikar Bítlanna, á þaki Apple-byggingarinn-
ar. Efnið var síðan notað í heimildarmynd um
gerð plötunnar.
Í mars 1970 voru upptökurnar fengnar
bandaríska upptökustjóranum Phil Spector,
sem bætti hljóðfæraleik við nokkrar þeirra,
en ekki voru allir á eitt sáttir með útkomuna.
Árið 2003 kom platan Let It Be... Naked út
og var markmiðið með þeirri útgáfu að gefa
lögin út eins og ætlunin var í upphafi.
ÞETTA GERÐIST: 8. MAÍ ÁRIÐ 1970
Síðasta breiðskífa Bítlanna kom út