Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 51
FÖSTUDAGUR 8. maí 2009 31
Skáldafélagið Nýhil efnir í sumar
til fyrirlestrahalds um endur-
komu róttækninnar, eins og það
er nefnt í fréttatilkynningu frá
hópnum: „Eftir frostavetur frjáls-
hyggjunnar eru hafnar leysingar
og heimurinn kallar eftir nýjum
hugmyndum um réttlátt samfé-
lag,“ segir þar, og „kerfisgallar
og eyðileggingarmáttur markaðs-
hagkerfisins birtust skýrt í hruni
íslensks efnahags síðasta haust.
Á sama tíma vekur snörp andófs-
bylgja vonir um endurnýjaðan
samtakamátt almennings.“
Í maí og júní munu fjórir af
þekktustu fræðimönnum heims á
sviði marxískra rannsókna heim-
sækja Ísland. Þetta eru Michael
Hardt og Antonio Negri, höf-
undar bókanna Empire og Mult-
itude; Chantal Mouffe, höfundur
hugmynda um róttækt lýðræði;
og Peter Hallward, einn fremsti
fræðimaðurinn í hópi nýrra, rót-
tækra heimspekinga í Evrópu.
Með heimsóknum þeirra gefst
fágætt tækifæri til að ræða þróun
og stöðu íslensks samfélags í sam-
hengi við hina alþjóðlegu baráttu
fyrir jöfnuði og réttlæti. „Tími
róttækra stjórnmála er núna,“
segja Nýhil-menn.
Hardt og Negri halda erindi sín
þriðjudaginn 26. maí kl. 20 í sal
102 á Háskólatorgi. Peter Hall-
ward verður á ferðinni 11. júní
og Chantal Mouffe hinn 13. júní.
Aðgangur er ókeypis á alla fyr-
irlestrana og boðið verður upp á
spurningar og umræður að þeim
loknum.
Nánari lýsingar á efni hvers
fyrirlestrar verða kynntar í fjöl-
miðlum þegar nær dregur. - pbb
Sagan er hafin á ný
KENNINGAR Nú er mikið tíðkað að taka
Marx gamla til endurskoðunar í ljósi
sögunnar.
Hörn Hrafnsdóttir mezzósópr-
an og Antonía Hevesi píanó-
leikari halda söngtónleika í
TÍBRÁ í Salnum á morgun kl.
17. Þá flytja þær ljóðaflokkinn
Frauenliebe und -Leben eftir
Schumann, og glæsilegar aríur
úr óperum eftir Verdi, Saint-
Saëns, Bizet og Tsjaíkovskí.
Af þessu tilefni munu þær
stöllur segja frá tónleikunum og
gefa tóndæmi í Listasafni Kópa-
vogs – Gerðarsafni í hádeginu
í dag kl. 12 og er alveg tilvalið
fyrir áhugasama að gæða sér á
gómsætri súpu í leiðinni.
Tónleikarnir marka upp-
haf Kópavogsdaga í Salnum en
eru jafnframt lokatónleikar í
TÍBRÁ á starfsárinu. - pbb
Söngur í Salnum
TÓNLIST Antonía Hevesi leikur undir hjá
Hörn Hrafnsdóttur í Salnum í dag og laugar-
dag. FRETTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 8. maí 2009
➜ Opnanir
17.00 Í Gallery Turpentine við Skóla-
vörðustíg 14, opnar sýning 9 listamanna
frá Íslandi, Englandi og Frakklandi. Opið
þri.-fim. kl. 12-18 og lau. kl. 12-17.
➜ Sýningar
Glerlistakonan Nadine Martin sýnir
glerperlur og muni unna úr þeim á
skörinni hjá Handverki og hönnun,
Aðalstræti 10. Opið virka daga kl. 9-18,
fimmtudaga til kl. 22 og um helgar
12-17.
Hertha Richardt Úlfarsdóttir hefur
opnað sýninguna „Fastagestir og
annað starfsfólk“ á Café Karólínu, við
Kaupvangsstræti á Akureyri. Opið mán.-
fim. kl. 11.30-01, fös.-lau. kl. 11.30-03
og sun. kl. 14-01.
➜ Síðustu forvöð
Sýningu Guðrúnar Kristjánsdóttur
„Veðurskrift“ í Hafnarborg við Strand-
götu í Hafnarfirði, lýkur á sunnudag.
Opið kl. 11-17.
Sýningu Bjargeyjar Ólafsdóttur í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur lýkur á sunnu-
daginn. Opið virka daga kl. 12-19 og
13-17 um helgar. Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð.
Í listasafni Akureyrar við Kaupvangs-
stræti stendur yfir samsýning fimm
málara undir yfirskriftinni „Kenjóttar
hvatir“. Sýningu lýkur á sunnudag. Opið
kl. 12-17.
Sýningu Eddu
Þóreyjar Kristfinns-
dóttur „Vistaskipti“
í Grafíksafni Íslands
við Tryggvagötu 17
(hafnarmegin), lýkur
á sunnudag. Opið kl.
14-18.
Í Listasal Iðu-hússins
við Lækjagötu sýnir Ólöf J. Guðmunds-
dóttur olíumálverk. Sýningunni lýkur á
sunnudag. Opið alla daga frá kl. 9-22.
➜ Tónleikar
17.00 Kristín Þóra
Haraldsdóttir víólu-
leikari verður með
tónleika í Salnum við
Hamraborg í Kópavogi.
Á efnisskránni verða
m.a. verk eftir Denyer,
Bartók og Hafdísi
Bjarnadóttur.
17.00 Tvær popphljómsveitir á vegum
Tónlistarskólans á Akureyri munu
spila í Eymundsson, Te og kaffi, Glerár-
eyrum, Akureyri.
➜ Leiklist
14.00 Leikfélagið Snúður og Snælda
sýnir verkið „Hressingarheimilið Líf í
tuskunum“ í Stangarhyl 4.
➜ Dansleikir
SalsaIceland heldur Latin Mix partý
á Cafe Oliver við Laugaveg 20. Mike
Sánchez annast tónlistina. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir.
Borgfirðingaball verður haldið á NASA
við Austurvöll. Fram koma hljómsveit-
irnar Chaplin, Draumalandið og Festi-
val auk þess sem DJ. Stjáni spilar.
Spútnik verða á Players við Bæjarlind í
Kópavogi.
Hljómsveitin MONO verður á 800 Bar
við Eyrarveg á Selfossi.
570 2400 og fáðu Fyrirtækjaöryggi í áskrift!Hringdu í
Verður góðu
dagsverki stolið
frá þér í nótt?
Kynntu þér öruggara Fyrirtækjaöryggi á öryggi.is
Nýjung í Fyrirtækjaöryggi
Fyrstu 2 mánuðir myndvöktunar fríir*
Tryggðu þér myndvöktun Öryggismiðstöðvarinnar á sértilboði
út maí - með myndvöktun er þitt fyrirtæki öruggara.
Með myndvöktun birtast myndir frá
eftirlitsmyndavélum í vaktmiðstöð Öryggis-
miðstöðvarinnar um leið og boð um óeðlilegar
mannaferðir berast frá öryggiskerfi.
Starfsmenn vaktmiðstöðvar geta þannig fyrr
staðfest innbrot, borið kennsl á innbrotsþjófa
og boðað lögreglu á staðinn.
* Hringdu í síma 570 2400 og kynntu þér
skilmála myndvöktunar.
www.oryggi.is