Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 52
32 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Akureyri International Music
Festival, eða AIM Festival, verð-
ur haldin í fjórða sinn um hvíta-
sunnuhelgina (28.-31. maí). Á
meðal þeirra sem koma fram
eru: Bob Mintzer og Stórsveit
Reykjavíkur, Stórsveit Akureyr-
ar, Megas, Retro Stefson, Hjálm-
ar og Mótettukór Hallgríms-
kirkju. Einnig verður boðið upp
á hljómsveitarkeppni fyrir ungar
norðlenskar hljómsveitir sem fer
fram 21. maí í Húsinu. Miðasala á
hátíðina hefst á Midi.is 13. maí.
AIM-hátíð
í þriðja sinn
HJÁLMAR Spila á AIM-hátíðinni.
Stórleikararnir Robert De Niro
og Edward Norton hafa tekið að
sér aðalhlutverkin í sálfræði-
tryllinum Stone. Myndin fjall-
ar um flókið samband eftirlits-
fulltrúa (De Niro) og manns
sem hefur verið dæmdur fyrir
íkveikju (Norton).
Leikstjóri verð-
ur John Curran,
sem starfaði með
Norton við mynd-
ina The Paint-
ed Veil. De Niro
og Norton léku
aftur á móti síð-
ast saman í
myndinni The
Score sem
kom út 2001.
De Niro á
móti Norton
ROBERT DE
NIRO
Solange Knowles er enn ekki þekkt
nafn í tónlistarheiminum enda stend-
ur hún óneitanlega í skugganum af
stóru systur sinni, sjálfri Beyoncé.
En Solange hyggst feta rækilega í
fótspor Beyoncé og hefur verið á tón-
leikaferðalagi um Evrópu. Þótt ótrúlegt
megi virðast vill Solange þótt ekki vera
næsta Beyoncé heldur lýsti söng-
konan unga því yfir að hún vildi
vera næsta Björk. „Já, ég vil
verða svona svört Björk,“ sagði
Solange í samtali við evrópska
blaðamenn.
Og til þess að fylgja þess-
um yfirlýsingum eftir tók Solange
It‘s Oh So Quiet í útgáfu Bjarkar á
tónleikum í Belgíu. Reyndar verð-
ur að taka fram að Björk tók lagið
upp eftir Betty Hutton. Uppátæki
Solange fékk víst lítinn hljómgrunn
hjá þúsundum Bjarkar-aðdáenda
sem eru víst alveg brjál-
aðir að sögn vefsíðunnar
RightTV.com. Hins vegar
er hægt að heyra flutn-
ing Solange á YouTube.
com en lítið hefur heyrst
af viðbrögðum Bjark-
ar sjálfrar. Blaðamað-
ur RightTV segir þó að
þau yrðu eflaust svipuð
og þegar Björk danglaði
í blaðakonu á flugvelli í
Bangkok. - fgg
Systir Beyoncé vill verða svört Björk
VILL VERÐA BJÖRK Solange Know-
les hefur engan hug á að líkjast
systur sinni, Beyoncé, heldur kýs
frekar að líta upp til Bjarkar.
ENGIN VIÐBRÖGÐ Björk hefur ekkert
látið hafa eftir sér vegna flutnings
Solange á laginu It‘s Oh So Quiet.
Sjónvarpskokkurinn kjaftfori,
Gordon Ramsay, ræddi um át
sitt á lundahjarta hér á landi
við spjallþáttastjórnand-
ann David Letterman fyrir
skömmu. Þetta óvenjulega
uppátæki Ramsays vakti
mikla athygli á síðasta ári
þegar það var sýnt
í þætti hans The
F Word á bresku
sjónvarpsstöðinni
Channel 4. Atrið-
ið var tekið upp í
Vestmannaeyjum
þar sem Ramsay
veiddi lunda eftir
að hafa fengið til
þess tilskilin leyfi.
„Þegar þetta litla
hjarta sló í lófa mínum
hugsaði ég með mér:
„Hvað á ég eiginlega
að gera? Á ég að haga
mér eins og skræfa eða
láta slag standa?“,“ sagði kokkur-
inn við Letterman, sem var nán-
ast kjaftstopp. „Ég borðaði það
en þá festist það í hálsinum á
mér og hélt áfram að slá. Þetta
fékk dálítið hörð viðbrögð
heima í Bretlandi,“ bætti hann
við. Það má með sanni
segja því kvörtunum
rigndi yfir Chann-
el 4-stöðina eftir
að þátturinn var
sýndur. Ekki þótti
þó ástæða til að
áminna Ramsay eða
stöðina fyrir athæf-
ið því engar reglur
voru brotnar að mati
eftirlitsaðila.
Sagði Letterman frá lundaáti
GORDON RAMSAY Sjónvarpskokkurinn
Gordon Ramsay borðaði hjarta úr lunda
þegar hann heimsótti Vestmannaeyjar.
DAVID LETTERMAN Spjall-
þáttastjórnandinn þekkti
hafði mikinn áhuga á
lundaáti Ramsays.
> SYRGIR KONU SÍNA
Bandaríski leikarinn Stanley Tucci syrg-
ir eiginkonu sína Kate sem lést í síð-
ustu viku eftir hetjulega baráttu við
krabbamein. Kate og Stanley voru
gift í fjórtán ár og eignuðust tví-
bura, skömmu eftir að þau gengu í
hjónaband árið 1996, og dóttir-
ina Camillu. Þetta kemur fram í
New York Post. „Eiginkona mín
var einstök manneskja sem
sýndi okkur hvað mikilfengleg-
ur styrkur er,“ segir í yfirlýsingu
sem Tucci sendi frá sér.
Við erum
6 ára!
Afmælistilboð og
skemmtileg stemming
og þér er boðið : )