Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 53
FÖSTUDAGUR 8. maí 2009 33
Síðasti hluti leitarinnar að hundr-
að bestu plötum Íslandssögunn-
ar er hafinn. Nú, þegar ljóst er
hvaða plötur teljast þær hundr-
að bestu, er það eitt eftir að raða
þeim í sæti. Kosningin fer fram á
Tónlist.is en meðan á kosningunni
stendur geta allir hlustað á allar
hundrað plöturnar í heild sinni.
Lokahluti kosningarinnar stendur
yfir til 29. maí og endanleg niður-
staða verður kynnt dagana 1. til
17. júní á Tónlist.is og á Rás 2.
Kosningin
heldur áfram
Megabeib ið
Megan Fox
hefur engan
áhuga á
strákum
á þrítugs-
aldri. Hún
segir að leik-
arar á borð
við Robert
Pattinson
úr Twilight
og hjarta-
knúsarinn
Zac Efron séu
ekki hennar týpur því þeir hafi
ekkert fram að færa. „Robert
og Zac eru allt of sætir eitthvað
með sitt mikla hár og í jakka-
fötum,“ sagði Megan, sem er 23
ára. „Rob er 22, held ég, og Zac
er 21. Það er bara grín. Strákar á
þrítugsaldri eru tímasóun. Þeir
hafa ekkert upp á að bjóða þegar
kemur að því að spjalla saman.
Þeir eru óþroskaðir. Mér finnst
strákar á fertugsaldri henta mér
betur,“ sagði Megan, sem er trú-
lofuð hinum 35 ára leikara Brian
Austin Green.
Megan kýs
eldri menn
MEGAN FOX Leik-
konan efnilega hefur
engan áhuga á strák-
um á þrítugsaldri.
Herraklúbburinn Fancý gerði góðan
túr til KEF um síðustu helgi, setti Bent
í G-streng, fór í hafnaboltamót og hitti
Jarvis Cocker sem var gerður að með-
limi í klúbbnum.
„Bent neitaði að fara úr bílnum allt kvöldið. Eftir
að hann var kominn í þveng. Við þurfum að senda
mann með mat handa honum í bílinn. Þvengurinn
fór á sálina á honum,“ segir Erpur Eyvindarson
og er að tala um félaga sinn Bent úr rapphljóm-
sveitinni Rottweilerhundum.
Herraklúbburinn Fancý gerði góða ferð í Kefla-
vík um síðustu helgi. Gisti á hótel Keili. Og þar
bar það meðal annars til tíðinda að Bent tapaði í
hefðbundinni hnífur-skæri-steinn-keppni Fancý
og þurfti að sæta því að vera í G-streng það sem
eftir lifði hátíðar. „Eins og venja er í klúbbnum,“
segir Erpur sem er lífið og sálin í félagsskapn-
um. Og útskýrir að nafn herrakúbbsins, sem er
þriggja ára, sé þannig til komið að enginn með-
lima er sérstaklega „fancy“ en við þetta tækifæri
klæða sig allir upp… „heavy fancy og étum fancy,
gistum á hótelum, erum ruglaðir og söfnum í
bauk fyrir auðmenn. Heavy gott að fara eitthvað
út í buskann og kynna fagnaðarerindi Fancý,“
segir Erpur. Og vill meina að þetta sé göfugur
félagsskapur - góðgerðarklúbbur. Nú hafi safnast
700 krónur fyrir… „hvað heitir hann, ehhh Magn-
ús, svo hann þurfi ekki að flytja til Rússlands,“
segir Erpur. Og þegar hann er spurður hverjir
séu í herraklúbbnum Fancý þarf blaðamaður að
hafa sig allan við því nú fer þulan að nálgast það
að teljast rapptexti: „Allir legend. Ég, Dóri DNA,
Skúli Tyson, fyrsti og eini pro boxari Íslands,
Steindi Jr. grínari, Bent rappari, Þrándur og
Geiri Slæ úr Aftureldingu-handboltanum, Siggi
Gúst lögfræðingur, Panda og Bjarni Bjé arkitekt
og fleiri.“ Það var nefnilega það.
Klúbburinn gerði sér það meðal annars til gam-
ans að fara upp á gamla Beis og efna til hafna-
boltamóts. Og á Keili hittu þeir Fancý-menn, sem
margir hverjir eru í tónlistargeiranum, kollega
sinn úr britt-poppinu, eina helstu kempu frá 10.
áratugnum, Jarvis Cocker, sem umsvifalaust var
gerður að meðlimi í Fancý. Að sögn Erps er það
algengt að á Hótel Keili rekist breskir popparar
með kassagítar. jakob@frettabladid.is
G-strengur lagðist á sál rapparans
BENT FELUR SIG Í BÍLNUM OG ERPUR VIÐ STÝRIÐ Rapparinn Bent tapaði í steinn-skæri-hnífur keppninni og þurfti
í kjölfarið að klæðast G-streng sem varð til þess að Bent vildi ekki koma úr bílnum það sem eftir lifði hátíðar.
JARVIS COCKER OG HÓTELSTJÓRINN ÞORSTEINN LÁR
RAGNARSSON Þeir Fancý-menn þóttust himin hönd-
um hafa tekið að rekast á Cocker og gerðu hann
umsvifalaust að heiðursfélaga í klúbbnum.
FANCÝ Í HAFNABOLTA Á BEISNUM Meðal þess sem
klúbbfélagar gerðu sér til skemmtunar var að spila
hafnabolta á gamla Beisnum.
Fyrir þig og þá sem þér þykir vænst um!
Kringlunni · 551 3200