Fréttablaðið - 08.05.2009, Blaðsíða 58
38 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
KÖRFUBOLTI „Sigurður er ákaflega
hæfur þjálfari og myndi sóma
sér vel í Vesturbænum. Hann er
eini Íslendingurinn sem kemur
til greina í starfið. Það þola líka
ekki allir pressuna í Vesturbæn-
um en Sigurður myndi þola hana,“
sagði Böðvar Guðjónsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar KR, um
Sigurð Ingimundarson, þjálfara
Keflavíkur og landsliðsins.
Böðvar staðfesti að hafa átt
óformlegar viðræður við Sigurð
um að taka við karlaliði félagsins
af Benedikt Guðmundssyni.
Sigurður er enn samningsbund-
inn Keflavík en neitaði því ekki að
hann gæti fengið sig lausan.
„Ég hef aðeins rætt við KR-
ingana en það var ekkert form-
legt. Ég er enn samningsbund-
inn Keflavík og ekkert annað sem
stendur í stöðunni en að ég verði
áfram með liðið,“ sagði Sigurður
dulur en hefur hann áhuga á að
þjálfa KR?
„Ég er náttúrlega bara þjálf-
ari og hef gaman af því að þjálfa,
hvar sem það er. Það kíkja allir
í kringum sig og ég hef gert það
áður. Samt hef ég alltaf komist að
þeirri niðurstöðu að vera áfram í
Keflavík,“ sagði Sigurður, en getur
hann lýst því yfir afdráttarlaust að
hann verði áfram í Keflavík?
„Það er ekkert öruggt í þessum
bransa,“ sagði Sigurður Ingimund-
arson að lokum. - hbg
KR-ingar vilja fá Sigurð til að leysa Benedikt af hólmi:
Ekkert öruggt í bransanum
Í DHL-HÖLLINNI Sigurður Ingimundarson sést hér á hliðarlínunni með Keflavík gegn
KR. Þetta gæti orðið hans heimavöllur næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Ólafur Ingi Skúlason
er allur að koma til eftir erfið
meiðsli og byrjar að spila með
varaliði Helsingborg í Svíþjóð í
næstu viku.
Hann sleit krossband í hægra
hné í september síðastliðnum og
hann gerði slíkt hið sama vinstra
megin árið 2005. Þá var hann frá
í tíu mánuði en nú fer hann af
stað sjö mánuðum eftir aðgerð-
ina.
„Ég hef verið að æfa undan-
farnar fjórar vikur en verið hálf-
gert súkkulaði á æfingum. En nú
í vikunni fékk ég grænt ljós frá
læknum liðsins að ég mætti beita
mér að fullu aftur,“ sagði Ólafur
Ingi.
„Ég spila með varaliðinu til að
byrja með og svo munum við sjá
til. Ég tel það bónus ef ég næ leik
með aðalliðinu áður en deildin fer
í frí í júní næstkomandi.“
Ítarlegt viðtal við Ólaf Inga má
finna á Vísi.is. - esá
Ólafur Ingi Skúlason:
Spilar aftur
í næstu viku
ÓLAFUR INGI Er að komast á lappir á
nýjan leik.
FÓTBOLTI Pep Guardiola, þjálfari
Barcelona, hrósaði John Terry,
fyrirliða Chelsea, eftir leik lið-
anna í meistaradeildinni í gær.
Viðbrögð leikmanna Chelsea
við dómgæslunni í gær hafa verið
fyrirferðarmikil í fjölmiðlum í
dag þar sem Didier Drogba hefur
fengið mest pláss eftir glórulausa
hegðun sína eftir leikinn.
Minna hefur þó farið fyrir því
sem fyrirliðinn John Terry gerði
eftir leikinn, en hann gerði sér
ferð inn í búningsklefa Barcelona
þegar honum rann reiðin og tók í
hönd allra leikmanna og þjálfara
spænska liðsins.
„Ég vil þakka John Terry fyrir
að koma inn í klefann hjá okkur
og óska okkur til hamingju. Hann
er sannur heiðursmaður,“ sagði
Guardiola.
Barcelona-mennirnir klöppuðu
fyrir Terry þegar hann fór út úr
klefanum. - bb
Þjálfari Barca um John Terry:
Hann er
heiðursmaður
JOHN TERRY Sýndi að hann er drengur
góður eftir leikinn gegn Barcelona.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES