Skinfaxi - 01.01.1931, Síða 4
4
SKINFAXI
Enn eru það hugsjónir og fórnfýsi, með kvöðum sín-
um og skyldum, er mest lífsgildi gefur hverjum ein-
stakling og heilum þjóðum.
Og það lífsgildi liafa U. M. F. leitazt við að efla
hjá íslenzku þjóðinni, og það munu þau efla í nú-
tíð og framtíð.
Þórhallur Bjarnarson.
U ngmennafélagar.
Þegar hið fyrsta ungmennafélag var stofnað á Alc-
ureyri fyrir tuttugu og fimm árum síðan, þá var frum-
hugsjónin hjá slofn-
endum ættjarðar-
ást, liagræn þjóð-
rækni. Á þeim dög-
um vorum við
stjórnarfarslega, að
mestu lcyti f járliags-
lega og að nokk-
uru leyti mennta-
lega háðir útlendu
valdi. I þann tíð
voru æði margir
unglingar um allt
land, sem liötuðu
útlendan yfirgang
í málum vorum,
fannst nytleysa ein
að felast i pilsum
Dana og háru kinn-
roða fyrir því, að
íslendingar skyldu knékrjúpa útlendum yfirrétti. Þessi
sömu ungmenni höfðu það traust á eðli Islendinga og
efni því, er í þeim býr, ofið úr ættgengri göfug-
Jóhannes Jósefsson.