Skinfaxi - 01.01.1931, Síða 9
SKINFAXI
9
Eg ætla aö svo margir miöaldra menn og konur
á íslandi hafi liina sömu sögu að segja, að telja megi
að áhrif Ungmennafélaganna liafi verið næsta víð-
tæk á þjóðlíf Islendinga og að enginn félagsskap-
ur liafi á þessum árum reynst þjóðinni heilladrýgri.,
23. jan. 1931.
Tryggvi Þórhallsson.
25 ára afmæli ungmennafélagamia.
----- ' .#
(Þetta er útvarpsræða sú, er dómsmálaráðherra flutti kvöld-
ið sem U. M. F. A. hélt afmælishótíS sína.)
Nú er í kvöld liðinn fjórðungur aldar, siðan ung-
mennafélögin liófu starf sitt hýr á landi. Þá var stofn-
að elzta félagið, Ungmennafélag Akureyrar. Tveir af
stofnendum þess eru nú sérstaldega landskunnir
menn, Jóliannes Jósefsson glímukappi og Þórhallur
Bjarnarson prentsmiðjustjóri frá Akureyri.
Félagið á Akureyri varð sterkt og öflugt, og er það
enn þann dag í dag. En sú alda, sem þar reis, brotn-
aði ekki á Vaðlaheiði og Súlum. Ungmennafélags-
hreyfingin breiddist á örstuttri stund út um allt land,
eitt félag í liverri sveit og stundum tvö í sama kaup-
staðnum. í höfuðstaðnum náði hreyfingin brátt miklu
fylgi; hér mynduðust tvö félög, annað fyrir unga
menn og liitl fyrir ungar konur. Milli þessara félaga
hér i bænum var í einu gott vinfengi og mikil keppni,
keppni í því einu, livort félagið gæti verið skemmti-
legra og gert meira gagn.
Innan stundar mynduðu nálega öll ungmennafélög