Skinfaxi - 01.01.1931, Qupperneq 12
12
SKINFAXl
ælíð Jiafa ungmennafélögin verið þar brautryðjend-
ur. Svo er ástalt um hina frægu laug Svarfdæla, og
laugina við Reykjaskóla í Hrútafirði. Þá starfa ung-
mennafélög í Dalasýslu við að gera glæsilega laug
á bæ Guðrúnar Ósvífursdóttur. í Borgarfiifði eru
ungmennafélögin að liyggja sundlaugar á fjórum
stöðum, og ein þeirra verður liin dýrasta og vand-
aðasta sundlaug hér á landi, næst á eftir ])eirri, sem
nú cr í smíðum liér i höfuðstaðnum.
Hér er ekki að þessu sinni staður og stund til að
rekja nákvæmlega hina margþættu atliafnasögu ung-
mennafélaganna. En ég vit nefna eitt dæmi, sem sýn-
ir í einu styrk og veikar hliðar þessarar hreyfingar,
Ungmennafélögin vildn rækta landið, græða skóg, og
glæða íþróttir og líkamslireysti. Félögin hér i Reykja-
vik fengu hjá bæjarstjórninni land fyrir skíðabraut
jiorðan í Öskjuhlíðinni. Og unga fólkið lagði á sig
aukavinnu, eftir að skrifstofum og búðum var lokað,
til að koma ])essu i framkvæmd. Fjöldi af ungum
mönnum og ungum stúlkum unnu að grjótvinnu ])ess-
ari, mánuð eflir mánuð, með þeirri starfsgleði, sem
er sprotlin af einlægum fórnarvilja. Um kaup var ekki
að tala, Iieldur um hitt, að ryðja urðina, hlaða stci'ka
garða báðum megin, græða túnrönd niður hliðina og
gcra sléltan völl fyrir neðan. Norskar greni- og furu-
plöntur voru gróðurseltar undir hinum háu görðum.
Þær vildu ekki vaxa. Staðurinn var þeim ekki sérlega
heppilegur. Snjórinn kom ekki nógur í brekkuna.
Verkið varð ónýtt i þeim skilningi, sem til þess var
stofnað. En andi verksins lifði. Unga fólkið, sem vann
að þessu verki, hefir síðan dreifzl út um allt land i
margháttaðar lífsstöður. En ])að hefir horið með sér
inn i slörf kaupsýslumanna, iðjuhölda, bænda, kenn-
ara, rithöfunda, skipstjóra og ekki sizl húsmæðra,
nokkuð af þeim eldi, sem brann í sál þeirrar æsku,
sem vann grjédvinnuna i Öskjuhlíð fyrir ekkert kaup,