Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1931, Page 18

Skinfaxi - 01.01.1931, Page 18
18 SKINFAXI Kveðjur frá forystumönnurn samvekrafélaga vorra. I. Þegar ég minnist ungmennafélags-hreyfingarinnar liér á landi, kemur mér fyrst og fremst í hug hin mikla þýðing hennar fyrir verndun móðurmálsins. Málhreins- un hefir verið, og er, mjög nauðsynlegur þáttur í upp- eldi þjóðarinnar, og ekki sizt í kaupstöðum, þar sem erlendir menn dvetja oft langvistum, án þess að læra málið. Sumir þeirra bera það að vísu við, en læra það ekki til hlítar. En það hefir þau áhrif, að málið verð- ur bjagað, og margir taka sér að óþörfu erlend orð í munn. En fyrstu kynni mín af ungmennafélags-hreyfing- unni voru þó ekki málhreinsunar-starf þeirra, heldur íþróttastarfið. Ungmennafélögin vildu vekja og glæða áhuga hjá æskulýðnum á allskonar likams-íþróttum; og ágætlega var af stað farið. Jóhannes glímukappi Jósefsson beitti sér aðallega fyrir ísl. glimuna, og varð mikið ágengt, eins og við öll vitum. Hann var um skeið glimukappi íslands og færasti iþróttamaður vor. Fór liann í víking til annarra landa, og gat sér livar- vetna frægðarorð, fyrir iþrótta-kunnáttu sína og glimu- snilld. — En Lárus J. Rist, fimleikakennari, synti yfir þveran Eyjafjörð, frá Oddeyrartanga, árið 1907, og þótti það prýðilega gert. — Þessi myndarlega íþrótta- vakning ungmennafélaganna hleypti nýju fjöri í íþrótta-félögin, sem þá voru hér í höfuðstaðnum, og ný félög voru stofnsett i ýmsum sérgreinum iþrótta. Skömmu siðar var stofnað íþróttasamband íslands (1912), og þar með hefst skipulagsleg samvinna i iþróttunum um land allt. í. S. í. hefir gefið út ýmsar iþróttabækur, eins og Glimubókina, Sundbókina, Knatt-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.