Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1931, Page 2

Skinfaxi - 01.04.1931, Page 2
74 SIÍINFAXI ið þá en nú. Þegar sótt var suður um Mosfellsheiði, var fátt um kennileiti í hríðarveðrum. Nú er síminn ágælur vegvísir og hægt að kallast á millum Kára- slaða og Laxness. Eg fór aldrei þessar ferðir; eg var svo ungur þá, að eg taldist ekki lilutgengur. En það man eg, að mér þótti, sem litlum dreng, mikið um vermanninn, er hann var ferðbúinn. Mig minnir, að gamla fólkið teldi þann bezt búinn í verið, sem klæddist heima- unnum fötum, yzt sem innst. Eg trúði þessu þá, og eg trúi því enn, að íslenzku nærfötin séu bezt í hrið- arveðrum á heiðum uppi. Það voru meðal annars minningarnar um ver- manninn, sem hentu mcr á leiðina, sem eg fór til Revkjavíkur i vetur. Það var og, að margir af fó- lsgum mínum höfðu ekki farið þessa leið fyr. Á þessum slóðum er margt að skoða og ilrnga, þótt um vetur sé. Landslagið er að sjálfsögðu dauflegra, þegar það er sveipað hvítavoðum vetrar, en vegfar- andinn getur þó, sér til litillar tafar, lvft blæjuhorn- inu og skvggnzt inn í vorlendurnar. 15. fehr. fórum við 25 saman frá Haukadal. Það voru nemendur mínir og kennari, Jón Kristgeirsson. Námsskeiðinu var lokið. Ferðinni var fyrst heitið að Laugarvatni. Það var glaða sólskin, er við lögðum af stað, en eftir stuttan tíma var komið versta veð- ur, norðanrok og skafbylur. Þó héldum við áfrarn án tafar og náðum greiðlega að Laugarvatnsskóla. Á Laugarvatni var okkur fagnað ó hezta hátt. Kveldvakan leið fljótt við skemmtiföng Laugvetn- inga, ræðuhöld, söng og dans. Næsta dag urðuin við lxríðartep])tir. Skemmtu menn sér þá við allskonar íþrótlir, svo scm fimleika, sund og glímur. Sund er mjög iðkað á Laugarvatni.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.