Skinfaxi - 01.04.1931, Blaðsíða 24
96
SKINFAXI
Félagsmál.
Sambandsstjóri
hefir heimsótt félögin í ungmennasamböndum BorgarfjarfS-
ar og Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, síðan 3. hefti Skf. kom
út. Eru 12 félög i fyrnefnda sambandinu, en 4 í hinu. Auk
þess kom hann til þriggja utansambandsfélaga á norðanverðu
Snæfellsnesi. Fundarsókn var misjöfn, víSast sæmileg, en á
nokkrum stöSum afleit, þótt hvorki hindraSi veSur né færi.
För sambandsstjóra var og heitiS í Dali og Húnaþing, en
þangaS varS eigi komizt, sakir samgöngubanns og kvefsóttar-
varna.
Vikivakar.
Helgi Valtýsson kenndi þá á námsskeiSi í Hvitárbakkaskóla
í janúar, en nú dvelur liann í Reykjaskóla í HrútafirSi. —
Ingimar Jóhannesson skólastjóri kennir vikivaka skólabörn-
um og ungmennafélögum í Hrunamannahreppi, stundum 40
í hring. Lætur hann vel af árangri.
2 minningarfundir.
U.M.F. Eyrarhakka mintist 25 ára afmælis ungmennafélag-
anna 10. febr. s.l. Stóð fundurinn 5 stundir, með ræðum og
söng. Þessi erindi voru flutt: Aldarfjórðungsafmæli U.M.F.
(Sigurður Kristjáns), ÞjóSernisvakning U.M.F. (Leifur Haralds-
son), Tóbakshindindisstarfsemi U.M.F. (Daníel Ágústínusson),
Minni U.M.F.E. (Vigfús Jónsson). Auk þess voru starfsmál
rædd. — 24. marz minntist sama félag 10 ára afmælis yngri
deildar sinnar. Komu þá háðar deildir saman á fund. Daníel
Ágústínusson (18 ára) flutti mjög snjallt erindi um starf og
þýðingu yngri deildar, samhandsstjóri ávarpaði deildina o. fl.
ræður voru flultar, sungið og lesið upp. Á fundi þessum var
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari kosinn heiSursfélagi U.M.F.E.
Að fundi loknum skemmtu menn sér við söng og dans.
U.M.F. Velvakandi
undirbýr nú stofnun harnadeildar hjá sér.
Haukadalsskólinn.
Skinfaxi vill vekja sérstaka athygli ungmennafélaga á aug-