Skinfaxi - 01.04.1931, Blaðsíða 3
SKINFAXI
75
Þar er líka Þjálfi og Röskva í þeirri mennt, að
ógleymdri prinsessunni. Svo eru tignarnöfn þeirra,
sem fremst standa í sundinu við skólann.
í Laugarvatnsskóla dvelja í vetur 120 nemendur.
Er þetta því stærsti lýðskóli Islands. Húsakynni eru
þar mikil og hin vönduðustu. Virðast nemendur njóta
þar hinnar heztu aðbúðar í hvívetna.
Flestir þeir, sem barizt liafa fyrir málum skólans,
hafa gert það vegna öruggrar trúar á vaxandi kyn-
slóð. Vonandi skilur æskan, að liér er mikið gert
hennar vegna og endurgreiðir það með auknu mann-
gildi.
Þá var ákveðið að lialda ferðinni áfram að Ivára-
stöðum, um Gjábakkahraun og Þingvöll. Við lögð-
um af stað kl. 10 árdegis. Bjarni skólastjóri hauð öll-
um nemendum sínum að fylgja okkur á leið. „Út!
út! í lireina fjallaloflið.“ Svo mælti hann. Við þessi
orð varð ys og þys um allan skólann, því að nú átti að
búa sig til ferðar. Bjarni skólastjóri er íþróttavinur
og maður lieill að hugsun og háttum.
Nú stóð allur hópurinn ferðbúinn á skólahlaðinu.
Leiðin lá vestur Laugarvatnshálsa, sem nú voru
þaktir harðfenni. Það markaði því hvergi spor. Ekk-
ert fast skipulag var á fylkingunni og gengu tveir
eða fleiri saman, eftir því sem verkast vildi.
Ánægjulegt var að horfa yl'ir hópinn, 150 manns,
allt ungt fólk, konur og karlar.
Það har við, að ekki var ærslum slillt betur í hóf
en svo, að mönnum var brugðið til glímu, ef þeir virt-
ust liggja vel við bragði. Þegar kom upp á hálsana,
var numið staðar og notið útsýnis, sem er hið tignar-
legasta.
Litlu seinna kvöddum við Laugvetninga og árnuðu
hvorir öðrum langra lífdaga. Hygg eg, að aldrei hafi
farið stærri hópur ungra manna þessa slóð um þetta
leyti árs.