Skinfaxi - 01.04.1931, Blaðsíða 6
78
SKINFAXI
ógæfu einstakra manna, sem leitt getur og lil ófar-
sældar lieillar þjóðar.
Sigurjón var í för með okkur til Reykjavíkur. Þar
kvöddum við liann og þökkuðum honum fyrir mikla
risnu, er hann hafði sýnt.
I Reykjavík dvaldi eg vikutíma með félögum min-
um. Skoðuðum við lielztu byggingar og söfn bæjar-
ins. Þennan tíma hafði eg daglega leikfimi með nem-
öndum mínum.
Að síðustu hauð eg nokkrum kunningjum mínum
að horfa á fimleika okkar. Bjóst eg við, að þeir mundu
liafa af því skemmtun nokkra, og að þeir gerðu ekki
hærri kröfur en efni stóðu til.
„Ármenningar“ voru mér hjálplegir með hús til
æfinga, og kann eg þeim beztu þakkir fyrir, svo og
öðrum þeim, er sýndu okkur iilýleika og góðar mót-
tökur, útilegumönnunum frá Langjökli.
Sigurður Greipsson.
Hús ungmennafélaga.
Ein helzta lífsnauðsyn hvers ungmennafélags er
að eiga „þak yfir höfuðið“, hafa ráð á húsi að koma
saman í, til starfa, íþróttaæfinga og gamanleika.
Hvert félag hlýtur að finna nauðsyn þessa, því skýr-
ar sem það vinnur.betur, enda er það næsta algengt,
að U.M.F. hafi komið upp samkomuhúsum, ýmist ein
sér eða í samvinnu við hreppa eða önnur félög. Nokk-
ur U.M.F. veit eg vera að safna fé og kröftum til að
reisa hús.
Eg hefi átt kost á því, að skoða allmörg samkomu-
hús ungmennafélaga á ferðum mínum í ár og fyrra.
Er það skennnst af að segja, að hýsna mörg lmsanna