Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1931, Page 17

Skinfaxi - 01.04.1931, Page 17
SKINFAXI 89 livila yfir áfengismálunum og síðustu árin, og þjóðin fari að telja áfengisverzlun sér samboðna, þá verður að nota einhver ráð, sem duga. Grímar S. Norðdahl. Noregsför ungmennafélaga. Eftir Guðbjörn Guðmundsson. V. Árdegis næsta morgun lögðum við af stað í l)il til Breifonn í Röldal. Er þar vfir fjallgarð að fara, rúmlega 1100 m. háan, og voru nieðfram veginum snjófannir og skriðjöklar, en á milli skógar og fossar. Var lieldur kuldalegt þar up])i, en um leið hrikalegt og tilkomumikið. I Röldal dvöldum við rúma 6 tíma. Því miður var rigning mestan tímann, svo að við gátum lítið séð okkur þar um. Þó skoðuðum við þar 700 ára gamla stafkirkju, sem auðvitað er mjög fornfáleg, öll rósamáluð að innan, og' á kórpalli standa trélíkneski af öllum postulunum — nema Júdasi. Yfir kór hangir stórt krossmark, sem fiskimenn áttu að hafa fundið í Krossfirði, skammt frá Björgvin, og var saga þess kross nákvæmlega sú sama og um kross- inn í Fanakirkju, og á háðum stöðum var fullvrt, að hún væri sönn! — Kl. 51/* héldum við svo áfram í híl í gegnum Brattlandsdalinn, sem í rauninni er ekki dalur, heldur gljúfur, því að víða voru þröngir dalir, en enginn sem þessi, er liann jafnþröngur alla leið, unz komið er á svolítinn undirlendisblett við Suldals- vatn, er lieitir Nesflaten, en er þangað kom, vorum við komin i áfangastað. Næsta morgun var svo haldið af stað á skipi efl- ir Suldalsvatni, sem liggur liátt í hamraþröng. Frá

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.