Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 18

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 18
90 SKINFAXl Suldalsosen er farið í bíl til Sand, gegnum fagran, skógivaxinn dal, með glæsilegum búgörðum liér og þar. í Sand, sem er lítið þorp, stigum við enn á skip, og var nú haldið til Slavanger, og komið þangað kl. 4%. Þar tók móti okkur Anders Lövik, sem liér kom 1924, og fylgdi okkur til Bondeheimen, l>ar sem við bjuggum, meðan við dvöldum í Stavanger. Um kvöldið gengum við um bæinn, eftir að liafa snætt kveldverð, með stjórn félagsins o. fl. Næsla morgun fengum við bréf að heiman, sem við höfðum látið senda okkur þangað frá Björgvin, en lítill friður var til að lesa, er heim kom, því að nú komu hlaðamennirnir, liver á eftir öðrum til að leita frétta hjá okkur. —- Eftir miðdegisverð var svo farið í híl suður á Jaðar, sem er eitt af glæsilegustu bændaliéruðum í Noregi. Jaðarinn er allvíðáttumikið sléttlendi, eftir því sem í Noregi gerist, og er allur ræktaður upp úr mjög hrjóstrugum jarðvegi, sem sjá má á því, að aidv þess sem allir túngarðar þar eru hlaðnir úr grjóti, allt að metra þykkir, eru víða hlaðn- ir garðar eftir endilöngu túninu og sumstaðar fleiri en einn, - allt úr grjóti, sem komið liefir upp úr jörðinni, þegar verið var að brjóta hana til ræktunar. Hefir sú ræktun kostað mikla elju og þrautseigju. Mundu Jaðarbændur glaðir, ef þeir hefðu sömu rækt- unarskilyrði og þau, sem við tslendingar getum val- ið úr. — Við komum að kofa þeim, sem Árni Gar- borg bjó löngum i og orti þar mörg af sínum ódauð- legu ljóðum og sögum, byggðum á högum og lífi bændafólksins á Jaðrinum. Hjá kofa þessum er Gar- l)org lieygður. Við koniuni einnig til Sóla og skoðuð- um þar gamlar kirkjurústir, sem eru jafnvel taldar vera frá dögum Erlings Skjálgssonar. Kirkja þessi he'fir verið allstór og skrautleg, af leifunum að dæma. Frá Sóla var svo haldið til Hafursro, sem er sumar- skáli ungmennafél. í Stavanger. Stendur hann við

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.