Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1931, Qupperneq 23

Skinfaxi - 01.04.1931, Qupperneq 23
SKINFAXI 95 Enda þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það að ís- lendingum er líkamsatgerfi gefið framar flestum öðrum þjóðum. Má rekja til þess inörg drög, að líkamlegir yfirburð- ir og atgcrfishæfileikar hjá oss íslendingum hafa fylgt þjóð- inni frá þvi land var numið og til vorra tíma og sannfærður er eg um, að væru jafnmargir menn teknir af handa hófi lijá öðrum þjóðum og æfðir i þrjá mánuði mundi alls ekki nást jafn góður árangur hjá þeim og þessum nemöndum Sigurðar Greipssonar. Uppeldisfræðin stefnir að því að leita að, hvar yfirburða bæfileikar séu fólgnir Iijá hverjum einstakiíng og þroska þá. Einmitt þroskun yfirburðahæfileika kemur hverjum einstak- ling í fyllra samræmi við sjálfan sig, kemur lionum til að finna sjálfan sig. Og eins og það er með einstaklinginn svo er það ineð þjóðina. Líkamsmenntun hefir því fvrir okkur íslendinga mikla jijóðernislega þýðingu auk þeirrar hollustu, þols, áræðis og djörfungar sem almennt er viðurkennt að hún hafi. Margur maður eyðir mánuðum og árum í málalærdóm og til náms í ýmsum fróðleik, er liann máske grefur janfskjótt og hann hefir handsamað hann. En líkamsmenntun verður aldrei grafin. Hún kemur lífi mannsins alltaf að notum í meiri heilbrigði og afköstum, bæði líkamlegum og andlegum. Þórhallur Bjarnarson. Frá Færeyjum. Ráðagerð hafði verið um það, að Rasmus Rasmussen lýð- háskólakennari í Þórshöfn, starfsbróðir Símunar av Skarði um 30 ár, ferðaðist hér á landi á sumri komanda, sem gest- ur ungmennafélaganna. Höfðu ýms héraðssambönd og einstök félög undirbúið komu lians. Því miður getur ekki orðið af ferð þessari i sumar, vegna veikinda á heimili Rasmusar. Von- andi keinur hann sumarið 1932. Símun av Skarði hefir verið lengi og hættulega vcikur i vetur, en er nú kominn til nokkurrar heilsu. í nýkomnu hefti Skúlablaðsins færeyska er ritgerð: „Fólka- háskúlar í íslandi“ eftir Aðalstein Signnmdsson. Er þar lýst framförum síðustu ára í alþýðuskólamálum vorum og sagt frá alþýðuskólunum, einkum Laugaskóla.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.