Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 26

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 26
98 SKINFAXl Bækur. Arnór Sigurjónsson: íslendingasaga, Akureyri 1930. Ýmsum mun þykja sem skólum vorum hafi nú verið margs meiri þörf en nýs yfirlits yfir sögu þjóSar vorrar. Væri og svo, ef miðað væri eingöngu við fjölda þeirra kennslubóka í íslandssögu, sem gefnar hafa verið út á síðari árum. En víst er um það, að ekki er á annarra færi, að rita slíkar bæk- ur en þeirra, sem um langt skeið liafa haft á hendi sögukennslu og gæddir eru næmum skilningi, samfara mikilli þekkingu, á sögu þjóðar vorrar. Enda gætir víða furðulegs misskilnings og ónákvæmni í eldri íslandssögum vorum; jafnvel þótt þær hafi ritað hinir lærðustu menn. í flestar kennslubækur vor- ar i íslandssögu vantar greinilegar frásagnir um atvinnuhætti þjóðar vorrar á iiðnum öldum. Flestar skortir þær einnig við- unandi frásagnir um hag og háttu alls almennings. Gefa þær þvi ófullnægjandi heildar- eða yfirlitsmynd af sögu þjóðar- innar. Er þetta ekki sagt til þess að varpa skugga á störf ýmsra ágætra sagnfræðinga vorra. Ber og þess að gæta, að þótt heimildir til sögu vorrar séu miklar að vöxtum, munu þær vera misjafnlega aðgengilegar. Mun því torsótt starf og tímafrekt, að vinna úr þeim, og eðlilegt, að ýmsar greinar sögunnar, eða jafnvel heil tímabil hennar, séu allmjög á huldu, þegar þess er gætt, hve fáir íslendingar hafa á síðari árum átt þess kost, að helga krafta sína óskifta sögurannsóknum. En nú á allra síðustu árum hafa nokkurir gáfaðir menn og skarpskyggnir lagt stund á þá hluta sögu vorrar, er lítt voru áður kannaðir, og gerir það þeim, er nii fást við yfirlitsrit, hægara um vik, og standa þeir því að þessu leyti betur að vígi en eldri kennslubókahöfundar. Gætir þessa mjög i íslend- ingasögu Arnórs Sigurjónssonar, og eru í henni ágætir kaflar um atvinnuhætti þjóðar vorrar á liðnum öldum. Eykur það, ásamt ýmsum öðrum kostum, svo mjög á gildi bókarinnar, að hún á sér fullkominn tilverurétt sem kennslubók. Höfundur nefnir bók sína yfirlit, og virðist hún eiga það nafn skilið. Auk þess sem höf. tekst víðast vel að raða efninu skipulega niður, gætir hann vel samhengis sögunnar, og þótt hann geti allrækilega ýmsra þeirra manna, er framarlega standa og miklu hafa vahlið um rás viðburða í sögunni, einblínir höf. ekki um of á þá, heldur reynir að skýra störf þeirra og stefnur

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.