Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 28

Skinfaxi - 01.04.1931, Side 28
100 SKINFAXI völd og styrk. Eru og þau hörmulegust örlög Guðmundar biskups, að kirkjan og hin svokftlluðu „guðslög“ hennar, sem hann virSist treyst hafa til að gæta réttar lítilmagnans, urðu til þess að traðka niður frelsi landsmanna og stuðla að þvi, að þjóðin kæmist undir erlent vald, samfara kúgun og alls- konar áþján. Höfundur ætlar bók þessa alþýðu manna, auk skólanemenda. Ætti bókin að geta orðið mörgum alþýðumanni að gagni, þeim er engan kost á skólagöngu, en numið hefir i bernsku þær kennslubækur, sem hafa til að bera skemmtilégar frásagnir af merkum mönnum og miklum viðburðum sögunnar, en skort- ir yfirlit og samhengi. Verð bókarinnar mun vera viðunandi, enda er allur ytri frágangur í góðu lagi. Prentun lýtalaus, prentvillur fáar og meinlitlar og pappír mjög góður. Er bók- in þess makleg, að hún sé lærð og lesin sem viðast, og er óskandi, að liún hvetji menn til frekari leslurs og íhugunar um sögu þjóðar vorrar. En þar er kröftugastra livata að leita til dáða og drengskapar og haldbezt uppbót á því, er skorta kann á lífsreynslu einstaklinga. E. J. E. Árbók Plagstofu íslands. Reykjavík, 1930—1931. Þetta er hók, sem vafalaust á að komast „inn á hvert heim- ili“. Hún er að vísu enginn skemmtilestur í venjulegum skiln- ingi, og skemmtileg þó — 150 bls. af töflum og tölum. Er þarna safnað í mjög aðgengilega handbók þeim hagfræðileg- um upplýsingum íslenskum, sem almenningur hefir not fyrir, en auk þess eru þar ýmsar alþjóðlegar yfirlitstöflur. Útgáf- an er vönduð, en bókin mjög ódýr, 3 krónur. Skinfaxa hefir horizt Skýrsla um héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði 1929—1930. Er það fyrsta starfsár skólans undir stjórn Björns Guðmundssonar, eins hins öruggasta ungmenna- félaga. Áður hafði sira Sigtryggur Guðlaugsson rekið skólann og stýrt honum í 24 ár, með prestsverkum. Gætir mjög óhrifa lians i menningarlífi Vestfjarða. Auk yfirlits um skólastarfið l'lytur „skýrsla“ þessi sýnis- horn af fyrirlestrum og ritgerðum nokkurra nemenda. Er gaman, að fá þarna að kynnast skólanum gegn um verk nem- endanna. Félagsprentsmiðjan.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.