Skinfaxi - 01.05.1931, Blaðsíða 14
114
SIÍINFAXI
„Gleymt er þegar gleipt er þing“
greinir hátturinn spaki —
en ef þú gleipir gullpening
gœgistu þér aö baki.
Enginn „fdtækraþcrrir“.
Nú finnst himni þegi þörf á þerri um jólin,
fénað les við föla birtu
fátæklingur dökkrar skyrtu.
Pólitískur himinn.
Allt er mælt á eina vog
í því svarta skýi:
helmingurinn öfgar og
afgangurinn lygi.
Sladdur i Kana.
Sjáðu hrjóstrug holtin mín
(hve eg er náðarþyrstur).
Breyttu vatni í brennivín,
blessaSur .Tesús Kristur!
„19. júni“.
Nú er júní nítjándi’ yfir norðurálum,
sá mun finnast flestum sálum
fjölþreifinn í kvennamálum.
„Sérhver gjöf vill gjald sitt fá“,
gott er að jafnist skaSinn.
Eitt sinn kyssti eg auSargná
og hún kyssti i staðinn.
Davíð og Batseba.
Aldrei hefði Úría
orðið svona viðskila,
hefði ekki Balseba
baðað sig við lindina,
og Davíð með sinn kvæðaklið
klifrað upp á húsþakið