Skinfaxi - 01.05.1931, Qupperneq 25
SKINFAXI
125
ans, eða af hinu, að þeir ótlasl afleiðingar allrar
óhlýðni og kjósa friðinn heldur en frelsið.
Tízka og almannarómur eru einskonar samnefn-
ari skilnings, þekkingar þroska og smekks allra þeirra,
sem liafa skapað þau og halda J)eim við. Hver sú
stærð, sem ekki gengur upp í þessum allslierjar sam-
nefnara, er talin hreinasta villa.
Á öllum tímum liafa uppi verið menn, sem snúið
hafa af venjuvígðum vegum fjöldans, út á óruddar
leiðir nýrra hugsjóna, í leit að víðfeðmara útsýni.
Fulltrúar vanans og kyrrstöðunnar hafa jafnan hætt
þá og hrakið, hyrlað þeim eitur, brennt þá eða kross-
fest. Þessir brautryðjendur kynslóðanna áttu J)ess
kost að lifa i náð og friði við valdhafa, trú og tízku,
með því að afneita hrópandi rödd samvizku sinnar,
afsala frelsi sínu. En J)eir kusu frelsið, og J)ess vegna
er framþróun til. Ekkert vald á himni eða jörðu fær
nokkru sinni yfirunnið eða kúgað J)á, sem vinna í
samræmi við lögmál lífsins. Síðar urðu bin geigvæn-
legu einstigi margra J)essara manna að lögboðnum
þjóðleiðum. Þakklátir göngum vér þessa vegi og veg-
sömum J)á, sem fyrstir bentu J)ar á færa leið, en
fordæmum hina, er ofsóttu þá.
En erum vér J)á viðbúin að veita viðtöku nýjum
sannindum? Erum vér viðbúin að þekkja hina hróp-
andi rödd sannleikans og blýða henni? Viðbúin að
taka í hverja framrétta liönd, er vill leiða oss til
betri kjara, hærri þroska, fullkomnara frelsis? Er-
um vér fær um, að krefjast fullkomins réttlætis af
sjálfum oss og öðrum? Höfum vér þrek til, að leggja
á oss það erfiði og J)á þjáningu, sem óhjákvæmi-
lega fylgir J)eirri kröfu? Leiðin til frelsis er óraveg-
ur árevnslu og þrauta. Að óttast og flýja þá örð-
ugu braut er J)ví bið sama og afsala sér allri von
um æðstu gæði lífsins: frelsið.
Steingrimur Baldvinsson.