Skinfaxi - 01.05.1931, Side 26
126
SKINFAXI
Félagsmál.
U. M. F. 25 ára.
Skinfaxi hefir áður getið
þess, að Guðmundur mynd-
höggvari Einarsson frá
Miðdal mundi gera minja-
grip um 25 ára afmæli ung-
mennafélaganna. Nú birtist
hér mynd af grip þessum.
Er það íslenzkur hvitfálki,
er situr á kletti. Gripurinn
er gerður úr íslenzkum
leiri með glerungi, litur frá
hvílu yfir í stálgrátt á fálk-
anum, en kletturinn með
steinlit, og á hann letrað
„U.M.F.Í. 1900—1931“. Fálk-
inn með klettinum er nál.
40 sm. á hæð. Verður þetta
hin glæsilegasla stofuprýði,
og nafn G. E. sannar, að
hér er vafalaust listaverk.
Myndin kostar 25—28 krón-
ur, eftir því live mörg ein-
tök verða gerð, því minna
sem meira selst. En það
mun lægra en venjulegt
verð slíkra listaverka. Við
það hætist sendingarkostn-
aður til kaupenda úti um
land, en hann er ekki hár, því að sent verður með skipum.
Þess er að vænta, að margir ungmennfélagar frá ýmsum
timum vilji eignast minjagrip þenna. Eru þeir beðnir að panta
hann sem fyrst, fyrir haustið að minnsta kosti. Pant-
anir má senda G. E., Listvinfélagshúsinu, eða sambandsstjóra.
Eyðublað undir pöntun er á kápu þessa heftis. Gripurinn
verður svo sendur með póstkröfu á næstu höfn við heimili
kaupanda.
Kveðju skilað.
„Skúlablaðið“ færeyska, 2. bh þ. á., flytur grein um 25 ára
afmæli íslenzku ungmennafélaganna, nijög hlýlega, og vitnar