Skinfaxi - 01.05.1931, Síða 28
128
SKINFAXI
gagnrýna nýjungarnar .... Hví skyldi eg þurfa að fleygja
frá mér þvi, sem þjóðlegt er og gamalt, áður en eg tek á móti
nýjungum? Er ekki skynsamlegra, að reyna að greina sund-
ur hina ýmsu þætti menningarinnar, fornrar og nýrrar, og
halda þvi bezta, svo sem postulinn ráðleggur? — —“
Sérstaka athygli
vill Skinfaxi leiða að iþróttanámsskeiði því, er Jön Þor-
steinsson auglýsir á kápu þessa heftis. Þarna er óvenjulegt
tækifæri fyrir áhugamenn að ná kennaramenntun i íþróttum,
og ungmennafélög að koma sér upp íþróttakennurum.
Rökkur.
Skinfaxa hefir borizt nýútkomið 2. hefti þessa árs af ofan-
nefndu timariti, er Axel Thorsteinson rithöfundur gefur út.
Rit þetta kemur út í minnst 10 örkum á ári og kostar kr. 5,00.
Flytur það einkum yfirlitsgreinar um erlenda viðburði, og svo
þýddar sögur, fróðleiksmola og greinar um ýms efni. í þessu
nýja hefti vill Skf. einkum benda á grein um bókasöfn í sveit-
um, eftir Sigurgeir Friðriksson.
Færösk Selvstyre
heitir bæklingur, sem Jóannes Patursson hefir nýgefið út á
dönsku. Er þar gerð skilmerkileg grein fyrir viðhorfinu í fær-
eyskum stjórnmálum og slefnu sjálfstæðisflokksins.
Skáldin
Sigurður Jónsson og Jón Þorsteinsson, sem eiga kvæði og
vísur í þessu hefti Skinfaxa, eru báðir bændur að Arnarvatni
við Mývatn og báðir löngu þjóðkunnir.
Islenzk föt.
Þjóðrækni ungmennafélaga á að koma fram i verki, þar
sem tækifæri er til. Það á t. d. að vera þeim metnaðarmál,
að klæðast íslenzkum fötum, að því leyti sem unnt er. Verk-
smiðjurnar Álafoss og Gefjun framleiða fatadúka, sem hverj-
um manni er sómi að bera klæði úr. Nú hefir Gefjun sett á
stofn saumastofu hér í bæ, og fást þar klæðskerasaumuð föt
fyrir mun lægra verð, en annars er kostur á. Vísast um það
til auglýsingar í þessu hefti. Önnur Gefjunarsaumastofa er á
Selfossi og hin jjriðja væntanleg á Akureyri. Álafoss er og i
þann veg að stofna saumastofu. Þeir U. M. F., sem nota ekki
íslenzk föt, hafa nú enga afsökun.
Félagsprentsmiðjan.