Skinfaxi - 01.12.1931, Page 3
SKINFAXI
159
Vormenn I.
Guðmundur Jónsson
frá Mosdal.
(Skinfaxi inun framvegis birta greinar uni ýinsa forvígis-
menn U. M. F. og myndir af þeim. Þótti sjálfsagt að byrja
á Guðnmndi frá Mosdal. í næsta hefti kemur grein um Lárus.
J. Rist).
Þegar skráð verður saga ungmennafélaganna ís-
lenzku og starfsemi jieirra fyrstu 25 árin, verður að.
sjálfsögðu getið margra góðra manna og ötulla, sem
unnið liafa kappsamlega að vexti og viðgangi þeirrar
hreyfingar. Og í þeim flokki verður framarlega nafnið
Guðmundur Jónsson frá Mosdal.
Án efa eru þeir fáir, sem
ungmennafélagshugsjónin
liefir tekið fastari og varan-
legri tökum; og þó enn færri,
sem sýnt hafa jafn mikla
óeigingirni og þrautseigju í
störfum sinum fyrir félögin.
Guðmundur Jónsson frá
Mosdal, skurðmeistari, er nú
ritari Sambands Ungmenna-
félaga fslands. Við liann
kannast allir ungmennafé-
lagar og fjölmargir þekkja
hann persónulega. Nú vill Gllðm. .,. frá Mosda!.
Skinfaxi leitast við að kynna
hann lesöndum sínum dálítið nánar.
Guðmundur frá Mosdal, eins og hann venjulega er
nefndur, er fæddur 24. september 1886 að Villingadal
á Ingjaldssandi við Ömmdarfjörð.