Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.12.1931, Qupperneq 12

Skinfaxi - 01.12.1931, Qupperneq 12
SKINFAXI 1C;8 fornum og nýjum skáldskap og Iicfir hið mesta yndi af, enda er hann skáldmæltur vel, þó að liann láti ekki mikið á því hera. Honum er mjög létt um mál og talar ófeiminn og skörulega. Bindindismaður hefir hann verið alla tíð, hæði á vín og tóbak og starfað mikið i Góðtemplarareglunni og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Sérstaldega hefir hann látið til sín taka innan unglingareglunnar og hefir í mörg ár vcrið gæzlumaður ungtemplara á ísafirði og yfirmaður unglingarcglunnar á Vestfjörðum. Um ýmsa aðflutta siði og liáttu nútíðarmanna læt- ur hann sér fátt finnast, en þó hleypidómalaust. Hann er trúhneigður í hezta lagi og laus við allan flysjungs- hátt. Af lcstri bóka hefir liann liið mesta yndi, enda á liann talsvert mikið og gott bókasafn, en hefir lengst af ekki hafl þess full not vegna óhentugs liúsnæðis. En nú liefir hann reist sér liús, sem hann notar ein- göngu sjálfur; hefir hann þar hjarta og rúmgóða vinnustofu svo og „skála“ til íbúðar. Ber lögun húss- ins og innansmíð svip af skapgerð Guðmundar, og er að ýmsu leyti sérkennilegt og eftirteldarvert. Stend- ur húsið við gatnamót á einliverjum fegursta bygg- ingarstað á ísafirði og her hátt og nýtur vel sólar, enda nefnir hann húsið „Sóltún“. Er gott til þess að vita, að honum hefir nú tekizt að húa vel um sig og að sínu skapi, og munu allir vinir lians óska þess, að honum megi vegna vel, og að sem lengst og víðast megi gæta liinna liollu og góðu áhrifa hans. Merkur rilhöfundur hefir þrýst siðfræði okkar saman í þessar tvær setningar: „Lærðu og kenndu, aflaðu og gefðu“. Eg þekki engan, sem frekar hefr hreytt samkvæmt þeim, cn Guðmundur Jónsson frá Mosdal. E. K.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.