Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1931, Page 15

Skinfaxi - 01.12.1931, Page 15
SKINFAXI 171 cyðir tómstundum sinum í benzinsvækju á borgargöt- um, i reykjarsvælu í kaffihúsum, í loftlitlum kvik- myndasölum, danssölum með ryklofti o. s. frv. Oft eiga þeir líka lieima i þröngum liibýlum, óhollum og ofhlöðnum fólki. Yegna alls þessa er unglingum hætl við hægfara eitrun, sem fer að lokum með heilsu þeirra og líkamsþrótt. Að vísu er lengd vinnutímans takmörkuð með lög- um fyrir þá unglinga, sem atvinnu stunda. Þó er eng- inn vafi á, að þrátt fyrir það þjást margir af skorti nauðsynlegrar hvíldar. Heimavinna tekur allt of mikið af tíma æsku þeirrar, er skóla sækir, eigi sízt vegna tilhneigingar unglinga lil að fresta störfum til síðustu stundar. Dæmi þess eru mörg, að óvistlciki heimilanna knýr unglingana út á götur. Yið þetta lmeigjast þeir að útigangi, og eyða svo ekki að eins tómstundum sínum, heldur svo og svo miklu af nauðsynlegum hvíldartíma, á götum úli eða í gildaskálum og skemmtistöðum. Nú þarf líkaminn nægan svefn á árum vaxtar og þroska, og sneyðist því líkamsþroskinn, ef skortir á nauðsyn- lega hvíld. Miður heilsusamlegir lifnaðarhættir gela og haft skaðleg álirif á likamsþroskann. Vafalaust vantar tölu- vert á æskilegt hreinlæti hjá allt of mörgum. Maturinn -er oft of „fínn“, svo að i hann vantar einmitt þau efni, sem helzt eru til þess fallin, að mynda hein og vöðva. Ivaffi er venjulega allt of mikill hluti daglegrar fæðu. Það gerir ef til vill ekki mestan skaða mcð eiturefninu, kaffiíni, heldur hinu, að það deyfir sultartilfinninguna og skerðir löngunina i almennilegan mat. Alvarleg hætta fyrir æskumenn er fólgin í tóbaks- nautn á uppvaxtarárum. Nikótínið hraðar hjartastörf- unum, en þau eru tiltölulega liæg i uppvextinum. Hjart- uð veikist auðveldlega við þetta, að vera rekið til að vinna liraðar en því er ciginlcgt. Hjartabilunum kvað fjölga meðal herskyldra manna (í Svíþjóð), og má

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.