Skinfaxi - 01.12.1931, Side 18
SKINFAXI
174
um að segja. Skátahreyfingin dregur og i ljós liœttuna
af misnotkun tóbaks og áfengis. Og með lögurn sínum
og starfsaðferðum reynir hún að gefa unglingum lirein-
an liug í kynferðiscfnum og auka viðnámsþrótt þeirra
gegn slikum freistingum.
Eigi má rugla saman likamsuppeldi og líkamsþjálf••
un. Hið fyrnefnda á að mynda jafnvægi milli ytri og
innri líffæra líkamans. Hin síðarnefnda á einkum við
þroskun einstakra vöðva og vöðvakerfa og að mynda
sérleikni. Skátahreyfingin vill vinna að þroska manns-
ins alls og mynda jafvægi meðal líffæranna, hjarta,
lungna, nýrna, vöðva o. s. frv. Með þvi móti ná menu
fyrst valdi á líkama sínum. Ef menn ná ekki valdi á
líkama sínum og þörfum lians, þá geta menn ekki held ■
ur ráðið við fýsnir þær og hvatir, sem siðhfi þcirra
kann að stafa hætta af.
Að hafa vald á líkama sínum er fyrsl og fremst að
liafa stjórn á vöðvunum. Til þess verða menn að vinria
bug á „vöðvaletinni“ og vöðvarnir að æfast og þrosk-
ast. Annars ldífa menn sér við hverskonar áreynzlu.
Taugaorkan leitar á þær liraulir, sem auðfarnastar eru.
Þelta þýðir, að það vcrða augnablikshvatir og þær
hreyfingar, sem eru að meira leyti eða minna enT: -
tekning, sem ákvarða gerðir manna. Fýsnir og hvalir
ná undirtökum. Þess vegna má vöðvaþjálfun mcð engi
móti vanta í líkamsuppeldið, og liún hefir eigi lítil sið-
leg áhrif. Því að vissu leyti eru vöðvarnir aðsetur slcap-
gerðar og hæfni til að koma fram. Og dyggðir vorar eru
vafalaust vöðvadyggðir fremur en menn halda almennt,
og gallar vorir vöðvagallar.
Það kemur og undir líkamsuppeldi, að ná valdi á
þörfum Hkama sins og að geta þolað að vissu marki
hita og kulda, hungur og þorsta, þreytu og syfju. Yenju-
lega liæltir unglingum við að láta undan Jiessu, þar sem
]iað gerir vart við sig sem sterk óþægindakennd. En ef
líkamsþörfunum er leyft að sctjast til fulls i liúsbónda-