Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1947, Síða 15

Skinfaxi - 01.04.1947, Síða 15
SKINFAXI 15 J^lefán ^/úUuiion : • • SkáBdið Orn Arnarson. Niðurl. Eftir 1934 átti Magnús jafnan viö mikla vanheilsu að stríöa. Hann gat örsjaldan á heilum sér tekið, og alltaf öðru hverju lá liann í sjúkrahúsi, sérstaklega hin síðari árin. Það var hjartað, sem hilaði. En andlegur þróttur skáldsins var aldrei meiri en á þessum árum, og þá urðu til þau kvæði, sem lengsl munu lifa. Tvennt mun liafa borið til þess, að skáld- ið orti nú meir en áður og var ótrauðara að birta kvæði sín. Þegar sjúkdómurinn tók að leggja liann aftnr og aftur í rúmið, varð skáldskapurinn æ kær- komnara atlivarf, þar sem nú var í svo fá hús að venda. Magnús var og maður skyldurækinn með af- brigðum, og eftir að hann var kominn á föst skálda- laun, þótti honum sem liann yrði að láta eitllivað eftir sig sjást. Ilafði liann orð á þessu við vini sína. Engum duldist þó, er við liann ræddi, að ekki var hon- um ljúft að birta oft ljóð á prenti. Og ef fyrir kom, að eftir hann vorn lesin kvæði í útvarp lokaði hann jafn- an fyrir tækið. Samt var hann stöðugur útvarpshlust- andi og liugsaði mikið um efni útvarpsins, flutning þess og frásagnir. Sendi hann útvarpsráði bréf og lýsli þar skoðunum sinum og tillögum. Auðvitað setti hann ekki nafn sitt undir bréfin. Magnús hafði mikið gaman af spilum sem dægra- dvöl. Mátti oft sjá hann á þessum árum silja við spil með ýmsum öðrum í rakarastofu Andrésar Johnson, en hann var góður kunningi Magnúsar. Oft komu og kunningjar lians heim til hans til að spila við hann, þegar hann var of veikburða til þess að geta verið á stjái. Alltaf var Magnús jafn hægur og afskiptalaus,.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.