Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1947, Page 28

Skinfaxi - 01.04.1947, Page 28
28 SKINFAXI JJJUór J\riitjániion : >> Utvarpsræða um bindindismáG. Góöir hlustendur! Mér er þaö ljúft aö hlaupa hér í opiö skarð og tala máli bindindisfélaga í skólum í fáeinar mínútur. Ég lief frá þvi ég var harn reynt að liugsa af alvöru og samvizkusemi um áfengismálin og nota þar ])á rök- vísi og ályktunargáfu, sem mér cr tiltæk. Hugmyndir mínar um mikilvægi bindindisstarfseminnar hafa lengi verið ákveðnar, en aldrei ákveðnari en nú. Það er því ekki af viljaleysi, þó að mér auðnist e. t. v. ekki að fylla með fullri sæmd það skarð, sem ég á hér að skipa. Blóð bróður þíns hrópar til mín af jörðinni. Þetta eru einkunnarorð allra bindindissamtaka. Þetta liggur þar til grundvallar, — tilfinningin fyrir böli samferðamannanna, — röddin, sem vekur sam- vizku mannsins og sviplir hann friði, þar til liann er kominn í andstöðu og baráttu við böl bræðra sinna. Það er ekki ágreiningur um áfengisbölið. Það er staðreynd, sem ckki verður á móti mælt. Sundruð heimili og sviknar tryggðir, afvegaleitt æskufólk, auðnulausir aumingjar á ýmsum aldri. Menn falla frá störfum vegna áfengisnautnar, jafnvel þeir, sem vegna mannkosta, gáfna og menntunar virtust vera fallnir til þess að vinna mikilvægustu störf. Meðan talað er um skipulagningu vinnuaflsins, ný- sköpun o. s. frv., vex drykkjuskapurinn ár frá ári, svo að við missum stöðugt fóllc hans vegna, liópur manna er alltaf verklaus af þessari eymd og ])úsund- ir manna tefjast frá störfum dag og dag eða eru ekki hálfir menn að gildi, þólt þeir liangi á vinnustað. Heimilið er friðheilagt, segir stjórnarskráin, og við

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.