Skinfaxi - 01.04.1947, Blaðsíða 35
SKINFAXI
35
<L'Linariion.
í-narióon.
ÍÞRÓTTAt=)ÁTTUR XI:
Spreffhlaop.
Til þcss að gera ljósari ýmis atriði spretthlaupsins, hef
ég valið að liluta framsetninguna niður i fjóra þætti: I. við-
hragðið, II. hlaupaskrefin, III. hvíldina, IV. hlauplok.
I. VIÐBIÍAGÐIÐ.
Sá, sem hefur sneggst viðbragð, hefur mestar likur fyrir
sigri. Margur liefur lagt sig í líma við að stytta þann tíma,
sem fer í viðbragðið, og ná um leið hinni mestu ferð á líkam-
ann sem fyrst.
Mestar framfarir urðu í spretthlaupatækni, þegar krop-
viðbragðið var tekið í notkun, fyrir rúmum 50 árum.
A. Mismunandi krop-viðbrögð.
Athugun á millibili fóta ýmissa liinna heztu spretthlaupara
í viðbragðsstöðu sýnir, að millibilið er nokkuð breytilegt.
1. Stutt krop (skotviðbragð). í beitingu þessa krops eru
tær aftari fótar móts við liæl fremri fótar, þegar sprett-
hlauparinn stendur uppréttur. Spretthlauparar hafa sjald-
an styttra en þetta milli fóta. Reynslan befur leitt í ljós, að
þessi staðsetning fóta veitir sneggst sprett-viðbragð. (Mynd
1A).
2. Meðal-krop. í beitingu þessa krops cr hné aftari fótar
á móts við tær fremri fótar, þegar kropið er. (Mynd 1B).
3. Langt krop. í beitingu þessa krops er liné aftari fótar
á njóts við hæl fremri fótar, þegar kropið er. Spretthlaup-
arar hafa sjaldan lengra en þetta milli fóta í viðbragðinu,
Reynslan hefur sýnt, að þetta sprettviðbragð er sízt til
árangurs fallið. (Mynd 1C).
3*