Skinfaxi - 01.04.1947, Side 51
SKINFAXI
51
Kristján L. Gestsson, Þorsteinn Einarsson, Guðni. Kr. Guð-
mundsson og Daníel Ágústínusson.
Það er einnig eftirtektarvert, livaða áiirif lögin hafa haft
fyrir starfsemi U.M.F.Í. og Í.S.Í.. Hjá U.M.F.Í. hefur félögum
fjölgað frá 1941, úr 94 í 185 eða um 91. Héraðssamböndum
hefur fjölgað úr 8 í l(i. Iljá Í.S.Í. hefur félögum á sama tíma
fjölgað úr 115 í 213 eða um 98. Og héraðssamböndum úr 0 í
19. Aukin fjárframlög til sambandanna hafa leitt af sér
aukna íþróttakennslu um allt land.
Þá er ekki síður merkilcgt að athuga áhrif íþróttaíaganna
fyrir íþróttastarfsemi skólanna. Skólaárið 1940—41 var sund
kennt í 72 skólahverfum eða 32%, en skólaárið 1944—45 í
212 skólahverfum eða 91%. Þróun fimlcikakennslunnar liefur
orðið svipuð i barnaskólunum. Höfuðáherzla hefur verið liigð
á sundnámið, enda ríflegastur hluti af fjárveitingum íþrótta-
sjóðs gengið til sundlaugabygginga viðsvegar um landið.
Að lokum segir íþróttanefndin um iþróttalögin: „Nú hefur
verið starfað samkvæmt iþróttalögunum í G ár og væri þá
rétt að liugleiða, hvort gera þyrfti á þeim breytingar. Við álit-
uin að ekkert það hafi komið fram við beitingu laganna, sem
þyrfti að breyta. Rétt er að geta þess, að rætt hefur verið
og skrifað um tvískiptingu íþróttaforustunnar, þar sem þvi er
haldið fram, að íþróttaforustunni hafi verið skipt á tvær
hendur — Í.S.Í. og U.M.F.Í. — með gildistöku íþróttalaganna.
4*