Skinfaxi - 01.04.1947, Síða 57
SKINFAXI
57
alls staðar verið vel fagnað og eru félögin mjög ánægð með
þessa starfsemi.
Minningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar
nemur nú rúml. kr. 23 þús. Hafa sjóðnum borizt kr. 100.00 frá
limf. Dagsbrún i Austur-Landeyjum, kr. 1000.00 frá A. L.r
Reykjavík, og frá Umf. Baldri, Hraungerðishreppi, kr. 300.00.
Enn er heitið á Umf. að minnast sjóðsins. 50. afmælisdagur
Aðalsteins heitins er 10. júlí næstkoniandi.
Iíannlaganefnd.
Stjórn U.M.F.Í. hefur kjörið Grim S. Norðdahl til þess að
taka sæti fyrir U.M.F.Í. i bannlaganefnd þeirri, sem verið
cr að stofnsetja, að tilhlutun framkvæmdanefndar Stórstúku
íslands.
Prófessor Richard Bech
verður fimmtugur 9. júní næstk. Þessi mæti Yestur-íslend-
ingur er ævifélagi U.M.F.Í. Hann hefur oft ritað i Skinfaxa,
lætur sér mjög annt um ungmennafélögin og vill veg þeirra
sem mestan. Skinfaxi flylur honum því beztu kveðjur í til-
efni afmælisins.
Lárus J. Rist,
hinn góðkunni sundfrömuður, iþróttakennari og ungmenna-
félagi hefur nú ritað æviminningar sínar. Nefnir liann bók-
ina Synda eða sökkva. Þetta er góð bók, og verður hennar
nánar getið i næsta liefti Skinfaxa.