Skinfaxi - 01.07.1954, Blaðsíða 4
52
SKINFAXI
Frú Olga og Maltliías Þorfinnsson.
Ölafur Jónsson kennari, mun því vinna og ferðast með
Matthíasi, og hófu þeir störf sín þegar eftir komu hans
hingað. Verkefni þeirra verður að leiðbeina i starfs-
íþróttum og reyna að samhæfa ýmsa þætti úr starfsemi
bandarísku 4H-félaganna íslenzkum starfsíþróttum og
viðfangsefnum ungmennaféla ga.
Þeir félagar, Matthías og Stefán, hafa þegar hafizt
handa á samningu nokkurra nýrra bæklinga í ýmsum
starfsgreinum, svo sem kálrækt, kartöflurækt og kálfa-
uppeldi. Þeir félagar munu einnig ferðast eins viða um
landið og þeim verður unnt. Munu þeir halda fundi
með ungmennafélögum, sýna kvikmyndir, ræða við
fólkið og aðstoða við starfsíþróttamót. Þeir munu að
sjálfsögðu hafa náið samstarf við ráðunauta Búnaðar-
félags Islands í störfum sínum.
Þeir félagar hófu ferðalag sitt í Árnessýslu í maí-
mánuði. Heimsóttu þeir mörg Umf. og ræddu við for-
ráðamenn. Einnig töluðu þeir við fjölmarga drengi úr
sveitum sunnanlands, sem voru við sundnám i Hvera-