Skinfaxi - 01.07.1954, Blaðsíða 6
54
SKINFAXI
Tvö bi*é£ frá Fiiinlaiidi
Baldur Óskarsson.
una og vonast til að
síðar verði.
geta
Baldur Óskarsson heitir ungur
maður, 22 ára gamall, frá Ás-
mundarstöðum í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu. — Síðastliðinn
vetur dvaldist hann í Finnlandi.
Stundaði hann nám í Ábolands
Folkhögskola í Pargas, sem ligg-
ur í finnska skerjagarðinum,
skammt frá Ábo. Baldur fór til
Finnlands á vegum Norræna fé-
lagsins. Um þessar mundir dvel-
ur hann í Svíþjóð, en heim mun
hann halda með haustinu.
Baldur hefur sent Skinfaxa tvö
fréttabréf, sem hér fara á eftir.
Þakkar Skinfaxi honum sending-
birt meira efni frá honum, þótt
K VierBBiniiki
Laugardaginn fyrir páska fór ég frá Helsingfors lil
Vierumáki í boði Leikfimi- og íþróttasambands Fínn-
land. Átti ég þctta fyrst og frenist að þakka hinmn
ágæta íþróttamanni og Islandsvin, Yrjö Nora í Heis-
ingfors. Vierumáki, en þar er stærsta og glæsilegasta
félagsheimili finnska íþróttasambandsins, liggur norð-
an og austan við Helsingfors. Eftir fjögurra tíma feið
með járnbrautarlest og lítils háttar bílakslur, komum
við að stílhreinni sex hæða byggingu, höll úr steini og
gleri. 1 göngum og sölum byggingarinnar er ys og kæti;
hér hefur æskan mælt sér mót, um 200 menn og konur
bvaðanæva úr Finnlandi. Meðal þessa fólks er margt
ágætra íþróttamanna og m. a. nokkrir meistarar.
Að loknum hádegisverði fer ég að kynna mér húsið.
Þar eru þrír leikfimisalir, einn geysistór og tveir minm.
1 kjallara vinstri aðalálmu hússins er veitmgastofa,