Skinfaxi - 01.07.1954, Side 5
SKINFAXI
53
gerði. Voru þeir á aldrinum 11—15 ára. Féll þeim vel
að tala við drengina og búast við góðum árangri r.f
slíkum viðtölum. Þá hafa þeir og ferðast um Mosfells-
sveit og aðrar sveitir i grennd við Reykjavík.
Skinfaxi náði sem snöggvast tali af þeim félögum
um mánaðamótin maí—júní. Voru þeir þá að leggja af
stað norður í Eyjafjörð. Lét Matthías mjög vel af dvöl
sinni hér það, sem af er, og var vongóður um árangur
af starfi sínu. Var hann mjög ánægður með samstarfið
við Umf. og taldi þau einmitt hinn ákjósanlegasia
vettvang fyrir þau verkefni, sem er aðaláhugaefni hans,
starfsgreinir ungmenna i sveitastörfum. Taldi hann,
að Islendingar stæðu stórum betur að vígi við útbreiðslu
starfsíþrótta en Bandarikjamenn, þvi að hér væru Umf.
til, en fyrir vestan þurfti að stofna 4H-félögin og hefja
síðan starfsemina.
Matthías lagði þó áherzlu á, að að sjálfsögðu hentaði
annað íslenzkum staðháttum en bandarískum, og þyrfti
því að reyna og sannprófa, hvað af þáttum 4H-félag-
anna hentaði hér. Taldi hann vafalaust, að sum atriði
úr starfsiþróttum á Norðurlöndum ættu hingað meira
erindi en þættir að vestan. Höfuðati’iðið væri ao finna
þau verkefni, sem æskunrenn sveitanna fengju áhuga
á og vildu fást við, og yrðu þau þá íslenzk verkefni.
Tók hann skýrt fram, að sér litist mjög vel á byrjun-
ina i framkvæmd starfsíþróttanna og það, sem þegar
hefði verið gert. — Hann lét mjög vel yfir því, hve
nrikið væri nú unnið að skurðgreftri og þurrkun lands.
Vitnaði það um meiri framkvæmdir í ræktunarmálum
en hann hefði búizt við. Minntist hann í þvi sambandi
á það, að vel gætu eldri unglingar liaft ræktun tún-
skáka sem þátt í starfsíþróttum.
Skinfaxi býður Matthias Þorfinnsson og konu hans
velkomin lil landsins. Er víst, að Umf. munu taka þeini
Matthíasi og Stefáni vel, er þeir koma í heimsókn, og
færa sér í nyt störf þeirra og leiðbeiningar.