Skinfaxi - 01.07.1954, Síða 10
58
SKINFAXI
ÞÁTTUR SUÐUR-ÞINGEYINGA :
Stefán í Sl ör&um.:
IMY EÐA NIÐ?
(Grein þessi barst Skinfaxa frá U.M.S. Suður-Þingeyinga,
eins og yfirskrift bendir til. Ritstjóra þótti sjálfsagt að birta
hana, þótt hann sé greinarhöfundi í mörgum atriðum ósam-
mála. En Skinfaxi er vettvangur allra ungmennafélaga, og í
honum er orðið frjálst, ef einhver veigur er í ritsmiðum. Verð-
ur þvi ekki neitað um þessa grein. Hins vegar mun Skinfaxi
áskilja sér rétt til að gera við hana athugasemdir, þótt siðar
verði, og þá sérstaklega varðandi skólamálin).
I.
Mörgum verða björt augu, er þeir mæta æskunni
í dag. Hlátur hennar, hreyfingar, hinn dirí'skufulli
glæsileikur töfrar, og menn stika áfram með stolti
þess, sem er svo hamingjusamur að hafa eignast snjaila
eftirlíkingu málverks eftir Picasso,
Hvílík er framtíð þín, Island!
Ctlendir sjá engan mun á æsku Austurstrætis og
þeirri, sem fer Champs Elyseés. Og þó var það í gær,
sem hún særði hið framandi auga með fátækt sinnar
ytri menntar. En það var í gær. Nú er kominn annar
tími og önnur æska, að vísu nokkuð ókenníleg, en
glæst. Og það er bros á vör og von í hjarta, eins og
svo oft vill verða gagnvart hinu framandi, er vér kunu-
um ekki full skil á.
kynnum, væri efni í langt mál, en ég læt hér staðar
numið að sinni. Á bökkum og eyjum tugþúsunda vatna
býr æska og elli þessa lands — hlið við lilið. Það er
æska, sem er virt og skilin og skilur sjálf kröfur
tímans og skyldu við fortíð og framtíð. Hún leggur
nýja hornsteina gróandi þjóðlífs.
Abolands Folkhögskola, 15. 5. ‘54.