Skinfaxi - 01.07.1954, Síða 17
SKINFAXI
65
vera, en eitt er víst. öll slík orð hafa farið fyrir ofan
garð og neðan hjá þeirri æsku, sem nú er. Sannast þar
á ótvíræðan hátt hin sígildu orð, að um leið og fræð-
arinn liættir að þekkja nemandann, verður ræða hans
rabb við tungl og stjörnur. Þess vegna er ekkert gagn
að hjálp þeirra, sem ekki hirða um að sjá og þekkja
æskuna, eins og hún er. Á íslandi hefur aldrei verið
æskufólk svipað því, sem nú er, útlendingar í síiiU
eigin landi, svo illilega slitið frá sinni sögu og venjum,
að það á tæpast sama mál og himin og þeir, sem áttu
sinn morgun fyrir styrjöld. Og því er ekkert gagn að
ritgerðum og greinum eins og þær voru áður. Æskan
les ekki slíkt orð. Sama er um ræðurnar. Aðrar leiðir
verður að fara, og þær eru tvær, aðeins tvær færar
milli eldri og yngri.
önnur er íþróttirnar.
Það kemur þó ekki að öllu leyti til af góðu, að þæí
eru með þeim glæsibrag, sem raun ber vitni. Um
nokkur ár hafa þær verið nálega sá eini vettvangur,
sem hinir eldri og yngri hafa mætzt á með gagn-
kvæmum skilningi og áhuga. Og eins og verða vill
með einbirni, hefur gætt nokkurs dekurs. En íþróii-
irnar hafa á tvennan hátt verið ómetanlegar. í fyrsta
lagi vegna sjálfs sín, hins mikla gildis sem þær hafa,
og í öðru lagi tókst þeim að halda lífi i ungmenna-
félagshreyfingunni, og á meðan er vegs von. Enda
fór svo að leið fannst.
Hin er leikstarfsemin.
Sú leið er lítt notuð enn þá, en hefur mikla mögu-
lcika til að verða boðleið mikilla og merkra hluta, þar
sem hægt er að færa æskunni miklar og dýrar gjafir.
Það verður erfitt að bi’jóta nýjar leiðir, ná eyrum
æskunnar og hjarta,gera hana betri og vitrari en nokkra
aðra. En það er engin afsökun fyrir því að reyna ekk’.
Það verður að gerast skjótt, því að brátt er landið og
5