Skinfaxi - 01.07.1954, Side 23
SKINFAXI
71
kennari og hefði þvi frábæra aðstöðu til æfinga. Rétt er það, að
Kristján er iþróttakennari og nú um stundir héraðskennari
Eyfirðinga, en ég lief sagt i þessum viðræðum og þótzt tala af
reynslu, að sá þarf að liafa mikinn áhuga, sem stendur yfir
íþróttaæfingum, livað þá óreglulegum og dreifðum íþrótta-
iðkunum, til þess að hafa sig sjálfan að sinni eigin sérþjálfun.
Vegna þessarar reynslu minnar finnst mér ávallt aðdáunar-
vert, ef starfandi iþróttakennari lieldur áfram iðkun áhuga-
íþrótta sinna.
Ég hygg, að ef að líkum lætur, muni þessi hlaupaafrek Kristj-
áns Jóhannssonar og lians góða fordæmi svo og hlaupasigrar
Eyfirðinganna og Austfirðinganna hleypa nokkru kappi í
hlauparaefni annarra héraða, svo að þolhlaupin á Landsmótinu
á Akureyri munu verða skemmtileg keppni og til eflingar þol-
hlaupum á íslandi.
Landsþjálfari bandarískra frjálsíþróttamanna, Brutus Hamil-
ton, lét blaðamenn hafa það eftir sér, er hann lieyrði um afrek
Bannisters, að nú myndu fljótlega koma margir fram á hlaupa-
brautirnar og hlaupa míluna á skemmri tima en 4 min.
Við íslendingar biðum alltof lengi eftir því, að hrundið
væri meti Jóns Kaldals á 5 km hlaupi. Nú hefur þetta skeð,
og sá er afrekaði að lilaupa hraðar en Jón hefur betrumbætt
það afrek. Það er því von okkar, sem þráum að sjá fleiri
þolhlaupara á ísl. lilaupabrautum eða víðavangi, að nú renni
fleiri á vað Kristjáns, fylgi honum eftir, lilaupi upp að hlið
hans og jafnvel fram úr!
En af hverju skyldi ég nú fjölyrða svo mjög um þetta, að
menn hlaupi nokkrum sek. liraðar en náunginn? Það er ekki
um liina háu tölu á metalistanum, sem mig dreymir, lieldur
hitt, að fá fleiri til þess að iðka hlaup, þvi að hlaupin eru
einhverjar liinar beztu íþróttir, og þau er alls staðar hægt að
æfa. Aðstaðan er til, en þá vantar kennsluna. Hún er einnig
við hendina. Kennslubók er til, og liægt er að skrifa iþrótta-
kennara og fá frá honum forsögu um æfingu og þjálfun. Þá
eru einnig til frábærar kennslufilmur um lilaup. Fyrst og
fremst þarf viljinn að vera til og til hvatningar viljanum skul-
um við liafa Kristján og 15 mín. til viðfangs.
Síðan þessi grein var rituð, hefur Kristján Jóhannsson lent
i bifreiðaslysi og slasazt allverulega. Vonandi er, að hann fái
góðan og skjótan bata á meinum sínum. Það er von og ósk
allra íþróttaunnenda.