Skinfaxi - 01.07.1954, Page 24
72
SKINFAXI
„Sundballet".
Á s.l. vetri tóku blöðin og útvarpið að segja frá sundballet
í Reykjavík.
Upp á flestu er nú fundið og hvað er nú þetta?
Hér er um að ræða leiki eða leikfimi á sundi.
Við íslendingar höfum mjög einskorðað sundíþróttina við
það að fá einstaklinga til þess að geysast i vatnsskorpunni á
sem skemmstum tíma milli bakka lauganna. Að vísu liöfutn
við á stundum ált íþróttafólk sem hefur leikið dýfingalistir,
og liópa eigum við, sem leikast á knetti á sundi. En liöfum við
þá ekki sundfólk, sem hefur leikið ýmsan fimleik í vatns-
skorpunni? Jú, t. d. æfði Lárus Rist um 1910 á Akureyri unga
sveina í því að leika ýmsan fimleik á sundi og hafði hann a.
m. k., að ég veit, sýningu á slíkum „kóðum“, eins og hann kall-
aði þessa sundsveina, úti á Akureyrarpolli.
Þá hóf Jón Ingi Guðmundsson að æfa stúlknahóp í Reykja-
vík fyrir nokkrum árum i slikum sundleikum.
S.l. haust liélt Sigríður Þ. Valgeirsdóttir námskeið i Sund-
höll Reykjavíkur í því sem Ameríkumenn nefna „Syncronized
s'wimming", en þessa sundiþrótt hafði liún lært, er liún stund-
aði nám í Bandaríkjum N.-Ameríku.
Þá kom fram á sjónarsviðið amerísk sundkona, Dolly Her-
mannsson, sem hefur verið leikinn þátttakandi í þessari sund-
íþrótt þar vestra.
Nú hafa þau þrjú siðasttöldu kynnt þessa sundíþrótt í
Reykjavík á s.l. vetri og er vonandi, að íþróttin breiðist út
frá þessari byrjunarviðleitni.
Þessi iþrótt á fullan rétt á sér. Hún er skemmtileg og krefst
góðrar sundfimi. Möguleikarnir að hreyfa sig í vatnsborðinu
eru margs konar, eða engu færri en lijá fimleikamanni á gólfi.
íþróttin þroskar þvi góða sundfærni og aukin liðleika.
Vonandi verður liægt liér i þáttum Skinfaxa að lýsa þessum
leikjum á sundi nánar, svo að fleiri taki að iðka þá.
Þorsteinn Einarsson.