Skinfaxi - 01.07.1954, Page 28
76
SKINFAXI
eða skemmri tíma og hefur vart önnur viðfangsefni. Kostn-
aður verður því hlutfallslega mjög mikill á nemanda og
honum of þungbær. Sú regla var því fljótlega tekin upp
að styrkja umferðarkennsluna þannig að samböndin
greiddu % af launum kennarans, sameiginlega eða hvort
út af fyrir sig, ef félagið var aðeins í öðru sambandinu.
An þessa stuðnings hefði íþróttakennslan í strjálbýlinu
orðið sáralítil eða engin.
2. Við skiptingu fjárins á milli sambandanna nú er lagður
til grundvallar kennslukostnaður um allt landið, eins og
hann varð árið 1953. Þar af er upp undir helmingur
kennslukostnaðar í. S. í. í Reykjavík einni. Með því að
dreifa fénu þannig, án þess að heildarframlag til íþrótta-
kennslu hækki verulega minnkar hlutur strjálbýlisins svo,
að litlar líkur og víða alls engar eru til þess, að hægt sé
að halda þar uppi svipaðri íþróttakennslu og verið hef-
ur um langt skeið.
Enda þótt æskilegt væri, að fjárliagur væri svo rúmur,
að unnt væri að styrkja alla íþróttakennslu 50% eða
meira, ber mjög að líta á aðstöðumuninn hjá fáeinum
unglingum í strjálbýlum sveitum og fjölmennum íþrótta-
félögum í Reykjavík eða öðrum kaupstöðum landsins,
bæði með því að standa undir greiðslum til kennarans og
hversu störf hans nýtast betur af augljósum ástæðum.
3. f Reykjavík njóta nær allir unglingar íþróttakennslu til
17 ára aldurs í gagnfræðaskólum og öðrum framhalds-
skólum bæjarins og greiðir ríkið þannig stórfé til hennar.
Unglingar í sveitum njóta ekki þessarar kennslu, nem.i
þeir sem fara í héraðsskólana. Aukinn stuðningur við
umferðarkennsluna á einnig þarna að jafna metin.
4. íþróttamenn í strjálbýlinu hafa sýnt á landsmótum U. M.
F. í. og við mörg önnur tækifæri, að þeir eru þessa stuðn-
ings verðugir. Hér er því óheillastefna tekin upp, sem
vafasamt er að meirihluti íþróttanefndarinnar geri sér
grein fyrir, hvaða afleiðingar kunni að hafa fyrir íþrótta-
starfið í dreifbýlinu.
5. Á framangreindum röksemdum mótmæli ég því, að út-
hlutunargrundvelli milli sambandanna sé breytt, meðan
ekki er hægt að auka fjárframlög svo til kennslunnar, að
stuðningur við strjálbýlið geti haldizt óbreyttur og aukin
framlög til íþróttakennslu í Reykjavík komi sem hrein
viðbót við það fé, sem nú er varið til íþróttakennslu í
landinu á vegum sambandanna.“