Skinfaxi - 01.07.1954, Síða 41
SKINFAXI
89
7. Geðslag, taugastyrkur og fjör.
Geðslag hestsins er mjög veigamikið atriði. Hesturinn þarf
að vera góðlyndur og auðsveipur. Hann má vera skapmikill,
en þá ekki of bráðlyndur og fyrtinn. Hann verður að hlýða
manninum fúslega, kergju- og mótþróalaust, vera skilnings-
góður og fljótur að átta sig. Margskonar geðbrestir þekkjast
hjá hestum, sem of langt yrði upp að telja hér.
Taugastyrkur hestsins er engu þýðingarminni. Hann verður
að vera alveg laus við fælni og liræðslu. Samfara hræðslu hests-
ins er oft vantraust til mannsins. Sjónhræðsla og hljóðhræðsla
er einnig algeng. Þá eru sumir hestar svo næmir fyrir kitlum,
ef komið er við þá, að óþolandi má teljast. Allir þessir ókostir
verða að dæmast hart.
Fjörið er hér talið síðast en ekki sízt. Vinnuvilji og starfs-
gleði liestsins ræður miklu um, hversu góð eign hesturinn er.
Vilji eða fjör hestsins er óháð fyrrnefndum atriðum, geðslagi
og taugastyrk. Því betra geðslag og meiri taugastyrkur, þeim
mun skemmtilegra og verðmætara verður fjörið. Taugasterkur,
óttalaus og geðljúfur hestur með miklu fjöri er það verðmæti,
sem hestamenn þrá fremur öllu öðru. Þetta eru atriði, sem
vandamest er að rækta, þvi að þau eru svo vandséð i fari
hestsins. Þess vegna er tamning kynbótahrossanna undirstað-
an fyrir ræktun veigamestu þáttanna í fari hestsins.
8. Heildarsvipurinn.
Heildarsvipurinn er látinn vega nokkuð i dómsniðurstöðun-
um, þvi að í fari hvers hests er „eitthvað", sem verkar ó hvern
skoðanda og dómara, sem ómögulegt er að koma að orðum eða
flokka með hinum atriðunum. Þessu „eitthvað" er gefið 10%
af heildarmatinu, og þannig getur t. d. „góður hestur“, sem
hefur í fari sínu ýmsa smágalla, sem draga hann niður i eink-
unn, fengið leiðréttingu, en vel byggður „slæmur hestur“ gæti
vegna einstakra einkunna lilotið of góðan dóm, þar sem hann
kann að skorta þetta „eitthvað“ að meira eða minna leyti.
9. Dæmi um framkvæmd dóms.
Nota má þessa dæmingaraðferð á almennum sýningum. Þá
geta einkunnir hrossanna gilt þannig:
1. verðlaun A = 95—100 stig
1. verðlaun B = 90—95 —
2. verðlaun A = 80—90 —
2. verðlaun B — 75—85 —