Skinfaxi - 01.07.1954, Qupperneq 44
92
SKINFAXI
Enginn skyldi taka þessi orð svo, að það sé út
af fyrir sig þjóðarnauðsyn að vinna þessa sund-
keppni eða sigurinn sé í sjálfu sér svo geysilega
þýðingarmikill. Hitt er miklu meira virði, að fjöldi
manna og kvenna mun iðka sund í sumar, að meira
eða minna leyti vegna keppninnar. Ut frá því sjón-
armiði er keppnin mikils virði. Fáist fólk til að iðka
sund, er tilganginum náð. Sumarið 1951 tóku
margir sig til og æfðu sund reglulega, unz þeim
tókst að synda hina tilteknu 200 m. Vonandi er, að
nú í sumar verði þeir enn fleiri, sem samnorræna
keppnin örvar til sundiðkana. Sundíþróttin er alit
í senn holl, fögur og gagnleg íþrótt. Enginn þarf
að sjá eftir þeim tíma, sem hann ver til sunds. Með
því stuðlar hann að aukinm hexlsurækt með þjóð-
mni, mein heilbrigði og hollan hfnaðarháttum. Ef
samnorræna sundkeppnm gæti haft áhrif í þess-
um efnum, er sannarlega betur farið en heima setið.
Og íslenzka þjóðin mætti vel við una, ef sund-
íþróttin yrði, vegna keppninnar, enn almennari en
hún nú er með þjóðinni, jafnvel þótt Islendingai
yrðu ekki hlutskarpastir.
Ekki er þó fyrir það að synja, að margir myndu
óska þess, að íslendingar sigruðu nú í annað sinn.
Og eins og áður er á bent, getur þetta vel tekizt.
Sundstaðir eru nú fleiri en 1951, og yngri kvn-
slóðin er enn betur synd en hún var þá. Einmg mega
menn nú fara 200 m á því sundi, sem þeim hentar,
og skipta um sundaðferðir á leiðmni. Ætti það síður
en svo að vera erfiðara fyrir þátttakendur.
Þar sem hér er um almennmgsátak að ræða,