Skinfaxi - 01.04.1955, Blaðsíða 1
Skinfaxi I. 1955.
Þáttur Vestfirðinga
Fyrir nokkru sneri ritstjóri Skinfaxa sér til stjórnar
Ungmennasambands Vestfjarða og bað hana að senda
ritinn efni lil birtingar. Vestfirðingar tóku þessari
málaleitnn vel, og fylgir þáttur þeirra hér á eftir.
Verður ekki annað sagt en skerfur þeirra Vestfirð-
inga sé mikill og góður. Formaður Vestfjarðasam-
handsins er Halldór Kristjánsson, bóndi á Kirkjubóli.
Ungmennasamhand Vestfjarða er þriðja héraðs-
sambandið, sem leggur til heilan þátt í Skinfaxa. Snæ-
fellingar riðu á vaðið, en síðan komu Suður-Þingey-
ingar með tvær langar greinar. Vafalaust eiga þeir
þó meira i fórum sínum.
Eins og oft liefur verið fram tekið í Skinfaxa, er
hann fyrst og fremst félagsrit ungmennafélaga, tengi-
liður milli héraðssambandanna og einstakra félaga.
Alll efni frá ungmennafélögum sjálfum er ritinu því
mjög kærkomið. Ætli það að vera góð trygging fyrir
heppilegu og vel þegnu efni, að hin ýmsu héraðssam-
bönd tækju saman þætti til birtingar í ritinu.
Um Ieið og Skinfaxi þakkar forráðamönnum þeirra
héraðssambanda, sem þegar hafa undirbúið og sent
þætti lil birlingar, og þá sérstaklega Vestfirðingum
i þetla sinn, beini-r hann þeim tilmælum lil stjórna
annarra tiéraðssambanda, að þær hregði nú skjótt
Við og láti skrásetja frásagnir af félagsstörfum og
ferðalögum og þætti um mannvirki, áform og nýjar
hugmyndir og sendi efnið síðan sem fyrst til birt-
ingar.