Skinfaxi - 01.04.1955, Blaðsíða 24
24
SKINFAXI
þar eru þá líka skýrustu og sterkustu rökin fyrir þvi,
hver nauðsyn það er, að við stöndum vel á verði. Það
reynir meira á trúmennsku þess, sem vakir yfir sam-
eiginlegum verðmætum í óþökk heimskra og skamm-
sýnna nágranna, vegna þess að hann nýtur ekki sam-
úðar og stuðnings þeirra, sem hann er þó að vinna
fyrir um leið og hann vinnur fyrir sjálfan sig. En trú-
mennska og framsýni íslendinga í þessum málum
sýnir injög verðleika þeirra til að varðveita auðæfi,
sem mannkynið í heild á að njóta um aldir fram.
Barátta okkar í fiskveiðamálunum er eilt af því,
sem kröftuglega styður það, að við séum sjálfstæð
þjóð.
Það er leitt að hugsa sér sjálfstæðisbaráttuna sem
stríð einhvers konar við eitnlivern, sem vill hrennna
sjálfstæðið frá okkur. Það væri nokkuð liægur vandi
að sameina menn um að segja nei við ákveðnum
málaleitunum og ákveðna aðila ef allt væri fengið
með því. En það er erfiðara að vera sjálfstæðislietja
á þann hátt, að gera kröfur til sjálfs sín, leggja grund-
völl að efnalegu sjálfstæði þjóðarinnar og skapa
fagra þjóðmenningu, sem vera megi öllum lieimi.
fyrirmynd. En það eru fyrst og fremst slíkir sjálf-
stæðismenn, sem við þurfum.
Mannfélagsskipanin öll, lög og reglur, skipta hér
miklu málk Ekkert þjóðfélag kemst í fremstu röð
menningarrikja án þess að liafa golt skipulag á inál-
um sínum. En annað er meira en skipulagið. Það
ríður alltaf og alls staðar mest á því, að eiga nóg af
góðu fólki, sem kemur vel fram, Iivort sem lagaákvæði
og lögreglueftirlit nær til eða ekki. Þessu má eng-
inn gleyma. Sizl af öllu má uppeldislegur félagsskap-
ur unga fólksins og leiðtogar hans gleyma þessu.
Eg nefni dæmi:
Það er golt að eiga menn, sem berjast fyrir rétt-