Skinfaxi - 01.04.1955, Blaðsíða 40
40
SKINFAXI
Sundfél. Grettir, Bjarnarfirði, nndibjó þurrkun lands fyrir
íþróttavöll, hóf undirbúning að örnefnasöfnun á félagssvæðinu.
Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps lagði fram nokkra vinnu við bygg-
ingu félagsheimilis og til skógræktar.
Umf. Vorboðinn, Engihlíðarhreppi, gróðursetti um 1000 trjá-
plöntur í skógræktargirðingu hreppsins hjá Holtastöðum í fé-
lagi við nokkra aðra hreppsbúa. Félagið gefur út skrifað blað,
sem lesið er upp á félagsfundum.
Umf- Hvöt, Blönduósi, bauð heim U.M.F. Vatnsdælingi, og
efnt var til skemmtiferðar til Dalasýslu.
Málfundafélag Nesjamana, Skagahreppi, lagði fram 202 vinnu-
stundir við byggingu félagsheimilis.
Umf. Tindastóll, Sauðárkróki, á gróðrarstöð, þar sem ræktuð
eru tré og blóm. — Kristján Jóhannsson, Axel Andrésson og
Guðjón Ingimundarson kenndu frjálsar íþróttir, knattspyrnu,
handknattleik og körfubolta á vegum félagsins.
Umf. Æskan, Staðarhreppi, vann í gróðurreit félagsins; bauð
lieim U.M.F. Frarn í Seiluhreppi.
Umf. Hegri, Rípurhreppi, hefur girt 4 ha land, þar sem fé-
lagsmenn vinna að heyöflun og skógrækt.
Umf. Hjalti, Hólahreppi, gaf út skrifað blað; fór skemintiferð
um vesturhluta sýslunnar. Gróðursettar voru trjáplöntui i reit
félagsins og tún leigt til slægna. Kristján Jóhannsson kenndi
frjálsar iþróttir og knattspyrnu á námskeiði, þátttakendur 24.
Umf. Glóðafeykir, Akrahreppi, fór skemmtiferð til Siglu-
fjarðar. Gróðursettar voru trjáplöntur á tveim heimilum í
lireppnum.
Umf. Æskan, Svalbarðsstrandarhreppi, endurbætti girðingu
um trjáreit félagsins og gróðursetti 200 plöntur. Unnið var
að byggingu íþróttavallar og endurbótum á sundlaug. Hermann
Sigtryggsson kenndi þjóðdansa, fimleika og knattspyrnu á nám-
skeiði, voru þátttakendur 30 fullorðnir og 20 börn. Eftir nám-
skeiðið höfðu nemendur sýningu og fóru síðan í heimsókn til
U.M.F. Framtíðarinnar, Hrafnagilshreppi.
Umf. Ársól, Öngulstaðahreppi, vann að gerð íþróttavallar á
Syðra-Laugalandi og gerðist aðili að byggingu félagsheimilis.
Bindindisfélagið Dalbúinn, Saurbæjarhreppi, lagði fram 20
dagsverk og kr. 10550.00 til byggingar félagsheimilis, vann cnn
fremur að trjáplöntun og endurbótum á skógargirðingu í Leyni-
ingshólum. Lokið er skráningu örnefna á félagssvæðinu.
Umf. Framtíð, Hrafnagilshrcppi, hafði þriggja vikna nám-
skeið í vikivökum, frjálsum íþróttum, leikfimi, knattspyrnu og