Skinfaxi - 01.04.1955, Side 21
SKINFAXI
21
fram að leggja nema vinnu sína í þágu félagsins, og
liafa því þessar framkvæmdir verið þeim ærið verk-
efni, þótt ekki scu ])ær meiri. Og nóg verkefni eru
framundan, því mikið skortir enn á, að laugin sé
komin i það liorf, sem æskilegt er. En slikt her sízl
að harma.
Starfið fyrir sundlaugina liefur verið líftaug Grett-
is. I>ar hefur félagið haft verkefni, svo nálægt, að
allir hafa getað eygt tilganginn, en síðasti áfanginn
þó nógu fjarlægur til þess að veita áframhaldandi
verkefni um mörg ár enn.
Auk þess veilir svo livert sumar nýtt starf við að
sjá um sundnámskeið og afla fjár til þeirra, því að
sjálfsögðu er ekki liægt að reka sundlaugina, þó
ekki sé meir en mánaðartima á sumri hverju, án
verulegs halla. Loks er þá að minnast á það, hvers
virði þessii sundlaug er Flateyringum. Nú eru flest
börn farin að fleyta sér á sundi 6—7 ára gömul, og
hygg ég að mörgum foreldrum sé 'rórra, er þau vita
börn sín á bryggjunni og út um báta, nú en áður, þeg-
ar þau gátu enga björg sér veitt, ef þau féllu í sjó,
og fimm fulltíða menn má sannanlega telja hér á Flat-
eyri, sem hafa bjargað lífi sinu eingöngu vegna sund-
kunnáttu.
En þella er saga, sem svo víða gerist um ísland,
þótt það sé aðeins rifjað upp hér. Hin almenna sund-
kunnátta íslendinga er áreiðanlega ekki lakasti þátt-
urinn í slysavörnum landsmanna.
Loks vil ég svo þakka þeim mönnum, sem stóðu
að setningu íþróttalaganna 1940, og íþróttafulltrúa,
sem jafnan hefur fylgzt með málum okkar hér af
vakandi áliuga. Án þeirrar livatningar mundi litið
félag i útkjálkaþorpi sennilega liafa heykzt á þvi að
koma óskadraum sínum um sundlaug í framkvæmd.