Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1958, Side 14

Skinfaxi - 01.04.1958, Side 14
46 SKINFAXI þvottahúsi, fjósi, við jarðyrkju, vallar- vinnu, heyskap og flutninga frá búi og til bús. Varla er það heimili í sumum héruðum, að verð vélanna, sem þar eru notaðar, nemi ekki tugþúsundum króna — og sums staðar hundruðum þúsunda, þegar allt kemur saman, allt frá verði saumavélar, hrærivélar og þvottavélar til þeirra miklu verðmæta, sem felast í dráttarvél, vörubíl og jeppa. Öllum má því vera Ijóst, að hagur heim- ilanna er ekki lítið undir því kominn, að menn kunni sem bezt að hagnýta sér vél- arnar, hirða þær og gera við þær. Margir eru fljótir að læra þetta — og þá ekki sízt unga fólkið ■— en samt sem áður er þarna víða mörgu áfátt. Vélar skennnast sakir þess, að sá, sem notar þær, kann ekki nægilega vel að beita þeim og veit ekki, livað varast ber ;vegna lélegrar hirð- ingar endast þær verr en efni standa til, og oft baka menn sér mikinn viðgerðar- kostnað af sömu sökum. Þá er og auð- sætt, að ef eigandinn hefur hvorki til að hera þekkingu né kunnáttu og þarf að fá mann að eða fara með tækið eða vél- ina á rándýrt verkstæði, jafnvel þótt ekki sé um að ræða vandasamar eða tímafrek- ar viðgerðir, hefur það í för með sér óþörf fjárútlát og eyðslu á stundum dýrmæt- um tíma. í rauninni liggur í augum uppi nauð- syn þess, að liver unglingur fái nokkra fræðslu um frumatriði þeirra verklegu fræða, sem rafvirkjar læra, svo mörg raf- magnstæki sem nú eru á heimilum, þekki gerð hinna margvislegu véla, sem notaðar eru svo að segja á hverju sveitaheimili, læri að hirða þær, taka þær sundur og setja saman og gera við allar bilanir, sem ekki þarf til flókna tækni eða dýr og margháttuð tælci. Það virðist einsýnt, að í stað þess að safna ungu fólki saman til náms í þess- um greinum í sérstökum skólum, sem til þess séu stofnaðir, eða á námskeiðum í hverju héraði, væri hagkvæmt, að ung- lingarnir ættu kost þessarar fræðslu í hin- um almennu framhaldsskólum, sem þeir sækja hvort eð er samkvæmt fræðslulög- um. Ungmennafélögin hafa góðu heilli beitt sér fyrir iðkun starfsíþrótta, hafa þar þegar unnið gott starf, ekki sízt með því að auka virðingu og áhuga fyrir gildi vel unninna verka á sviði hússtjórnar og framleiðslu, og þar eð það mál, sem hér hefur nú verið hreyft, veldur mjög miklu um hagi hinnar ungu kynslóðar í þessu landi, færi vel á, að héraðssambönd og U.M.F.I. beittu sér fyrir skynsamlegri og skjótri framkvæmd þess. Frá skrifstofu U.M.F.Í. Saga félaganna. Skrifstofan óskar sérstaklega eftir því að fá stutt ágrip af sögu félaganna. Þær heimildir þyrftu að vera fyrir hendi, þegar samin verður heildarsaga ung- mennafélagshreyfingarinnar. Sambandsráðsfundur. Næsti sambandsráðsfundur verður haldinn í Reykjavík 27. september næst- komandi. Símar. Sími skrifstofu U.M.F.Í. er 12546. Sími framkvæmdastjóra 12204. Skúli Þorsteinsson.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.