Skinfaxi - 01.11.1959, Qupperneq 9
SKINFAXI
105
Sunthttttti \iu'tftnittt
UNGMENNA-
FÉLAGA
Ungmennafélög á Norðurlöndum liafa
myndað samband sín á milli, sem ber
nafnið Nordisk Samorganisation for jord-
brugsfagligt og kuluturelt Ungdomsarbej-
de; skammstafa,ð NSU. I sambandi þessu
eru 11 félagasambönd, 4 finnsk, 3 norsk,
1 sænskt, 2 dönsk, auk Ungmennafélags
Islands, en það gerðist reglulegur aðili að
sambandinu nú í haust, þótt það bafi áður
tekið virkan þátt í samstarfi ungmenna-
félaga á Norðurlöndum. Sex félagasam-
böndin fjalla um landbúnaðarstörf sér-
staklega, en liin 5 um önnur menningar-
leg viðfangsefni.
Starfsemi sambandsins er nú að verða
all umfangsmikil og sífellt að aukast. Ár-
lega sér það um eitt norrænt mót, sem
haldið er til skiptis í aðildarlöndunum.
Þessi mót eru: starfsíþróttamót, æskulýðs-
vika og 4-H mót, en 4-H er félagsskapur
unglinga undir tvítugu, sem fæst fyrst og
fremst við starfsíþróttir. NSU er skipt í
þrjár deildir, sem liver um sig sér um
ákveðið viðfangsefni, t. d. sér 1. deild um
allt, er lýtur að starfsíþróttum, utan 4-H
félaga og annast um starfsíþróttamót
Norðurlanda. 2. deild sér um norrænu
æskulýðsvikuna og menningarleg sam-
skipti utan starfræna sviðsins, og 3. deild
sér um 4-H unglingastarfið.
Aðalfund heldur svo liver deild um leið
Bygholvi
og aðalfundur NSU er haldinn, en liann
er allajafna liafður í sambandi við áður-
nefnd mót. Siðasti aðalfundur NSU var
haldinn í Horsens í Danmörku 19. sept.
s.l. Þann fund sal undirritaður fyrir liönd
UMFl. Fundurinn var haldinn í einum
nýjasta og fullkomnasta búnaðarskóla
Dana á Bygliolm. Rétt til fundarsetu liafa
fjórir fulltrúar frá hverju laudi. Aðalfund-
inn setti formaður sambandsins, Erilc
Jonsson, en hann er bóndi í Svíþjóð. Hann
stjórnaði ennfremur fundinum.
Á fundinum var mikið rætt um sam-
starf umf. á Norðurlöndum og i Yestur-
Evrópu. Virtust fundarmenn einbuga á
auknu samstarfi, bæði á menningarlegu
og starfrænu sviði.
Ákveðið var á fundinum að bafa um
miðjan febrúar í vetur námskeið fyrir
félagsleiðbeinendur í starfsíþróttum. Nám-
skeið þetta á að verða i Svíþjóð og mega
sækja það allt að 10 manns frá liverju
landi. Töldu allir fundarmenn mikla nauð-
syn á svona námskeiðum, sem fjölluðu
um ákveðiu viðfangsefni bvert sinn.
Ákveðin voru þrjú næstu mót NSU.
Æskulýðsvika verður næsta sumar baldin
í Danmörku, sennilega í Viborg-böj skole
í Viborg. Verður liún haldin um miðjan
júní, en þá eru liðin 25 ár frá því að
fyrsta æskulýðsvika ungmennafélaganna