Skinfaxi - 01.11.1965, Side 18
Starf og íórnfýsi
Þegar landsmótsges'ir hngsa til heim-
sóknar sinnar a5 Laugarvatni í sumar, mun
þeim eðlilega efst í lniga stórfengleg í-
þróttakeppni, góð skemmtiatriði, veður-
blíða, fallegt umhverfi, góð fyrirgreiðsla og
hinn ágæti andi sem á mótinu ríkti. Allt
þetta virtist sjálfsagt og eðlilegt, eins og
jafnan á skemmtimótum sem vel eru skipu-
lögð og framkvæmd af traustri stjórn.
En málgagn ungmennafélagshreyfingar-
innar telur sér skylt að minna á, að allt
þetta, nema liið ómetanlega tillegg veður-
guðanna og staðhátta á Laugarvatni, var
árangur af löngu og þrotlausu starfi ung-
mennafélaga í öllum landshlutum, en þó
auðvitað sérstaklega þeirra sem önnuðust
Umf. Drengur 50 ára
50 ára afmæli Umf. Drengs í Kjós var
lialdið hátíðlegt í félagsheimili Kjósverja
Félagsgarði þann 16. okt. sl. Var samkoman
öll hin prýðilegasta og bar hún, sem og
gjafir, er bárust félaginu, vitni um hversu
rætur þess eru sterkar í hugum Kjósverja
eldri sem yngri og þáttur þess merkur um
uppbyggingu hinnar ágætu sveitar og fé-
lagssvæðis. Sambandsstjóri U.M.F.Í flutti
ávarp og kveðju U.M.F.Í. og færði félag-
inu að gjöf borðfána U.M.F.Í. Hvítbláinn.
Fjölmenni var á þessari glæsilegu af-
mælishátíð.
undirbúning og framkvæmdir mótsins sjálfs.
Héraðssambandið Skarphéðinn tók að sér
í ársbyrjun 1963 að sjá um undirbúning
og framkvæmd landsmótsins. Var þá þegar
tekið að vinna margviss: að undirbúningi
og honum haldið áfram með sívaxandi elju
og kappi allt til þess að þetta rnikla starf
blómstrði í hinni eftirminnilegu íþrótta- og
æskulýðshátíð í júlímánuði 1965.
Landsmótsnefnd var kosin á þingi HSK
í janúar 1963,og voru þessir kosnir: Stefán
Jasonarson (form.), Bjiirn Sigurðsson, Her-
mann Guðmundsson og Hermann Sigur-
jónsson. Síðar var Ármann Pétursson til-
nefndur í nefndina af stjórn UMFÍ. Lands-
mótsnefnd réði sér síðar framkvæmdastjóra,
Hafstein Þorvaldsson, og á hans herðum
hvíldi erilsamt og ábyrgðarmikið starf allt
þar til mótinu lauk. Samstarf landsmóts-
nefndar og framkvæmdastjóra var með á-
gætum og hefur nefndin borið mikið, lof á
framkvæmdastjóra sinn fyrir traust og dug-
mikð starf og góða skipulagshæfileika, sem
mjög þurfti á að halda við mótið. Þessir
aðilar náðu ágætri samvinnu við alla þá
fjölmörgu aðila, sem leita þurfti til í sam-
bandi við landsmótið.
Mjög er athyglisverður og eftirminnileg-
ur sá áhugi sem framkvæmdastjóra, lands-
mótsnefnd og forráðamönnum HSK tókst
að vekja meðal fólksins á sambandssvæði
HSK fyrir því að láta þetta landsmót verða
héraðinu til sóma. Allir voru fúsir til að
18
SKINFAXI