Skinfaxi - 01.11.1965, Blaðsíða 34
VakÍBE þjóðarathygli
Landsmóí ungmcnnafélaganna
vakti óskipta athygli allrar
þjóðarinnar og sýndi öllum i'ram
á að ungmennafclagshrcyl'ingin
hefur aldrei átt eins mikinn
fjölda af dugmiklu æskufólki til
að byggja á, eins og nú.
Dæmi um þennan áhuga er
það, að öll dagblöðin birtu for-
ystugreinar um 12. landsmótið
og ungmennafélögin. Birtum við
hér kafla úr þeim tál þess að
kynna lesendum Skinfaxa álit
forystumanna dagblaðanna.
„LANDSMÓT UMFÍ”
„Að því (Iandsmótinu) stóð ein merki-
legasta og manndómsríkasta félagshreyfing,
sem látið hefnr að sér kveða í landinu á
þessari öld. Þar fylkti æskan liði með meiri
glæsibrag, en sézt hefur áður á íslenzku
landsmóti. Þar áttu aldnir menn og ungir
samleið í baráttu fyrir göfugum hugsjón-
um.
Úr flestum eða öllum héruðum landsins
komu fjölmennir og glæsilegir hópar þess
unga fólks, sem vaxið hefur upp í land-
inu síðustu áratugina, og þar fór fram fjöl-
mennari íþróttakeppni en á nokkru öðru
móti. Sérstaklega er ánægjulegt, hvernig
atvinnulíf Iandsins tengist íþróttalífinu í
starfsíbróttunum.
Laugarvatnsstaður heilsaði gestum í feg-
ursta skrúða, og umgerð hans stóð sem
glæsilegt tákn um reisn æskunnar í land-
inu. Á mórinu voru haldnar samkomur með
ræðum og ágætum skemmtunum, og því
var heldur ekki gleymt að líta til vegar inn
í framtíðina. Með þessu móti sýndu ung-
mennafélögin þjóðinni, svo að ekki þarf um
að villast, hver styrkur býr í þeim enn, og
að enn er óhætt að binda djörfustu vonir
þjóðarinnar við þau.
Undirbúningur og stjórn þessa mikla móts
er talinn hafa farið frábærlega vel úr hendi
ungmennasambandsins Skarphéðins, og
mótið allt fór svo vel fram, að aðdáun
vakti, og í því sýndi ungmennafélagsæsk-
an og hreyfingin enn manndóm sinn og
þroska."
(Tíminn, 6. júlí 1965).
„NÝJAR HUGSJÓNIR"
„Um helgina var haldið mikið mót Ung-
mennafélaga á Laugarvatni. . . . Um eitt
mál gæti æskan í sveitum og borgum sam-
einast undir merki Ungmennafélaganna,
mál, sem reyndar er gamalt hugsjóna- og
baráttumál félagsskaparins og þar sem nýs
átaks er nú mjög þörf. Náttúrufræðingar
okkar hafa fyrir skömmu bent á þá í-
skyggilegu staðreynd, að landið blæs óðum
upp og eykst landauðnin með hverju árinu
sem líður . . . Er hér ekki um verðugt
framtíðarverkefni að ræða fyrir Ungmenna-
félagshreyfinguna í landinu?"
(Vísir, 5. júlí 1965).
34
SKINFAXI