Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1965, Side 20

Skinfaxi - 01.11.1965, Side 20
IVæsÉstærsÉa borg á f slandl Meðan landsmótið fór fram var reist á Laugarvatni næstfjölmennasta borg á ís- landi. Hún var ekki gerð af grjóti og járni, heldur var þetta stærsta og fallegasta tjald- búða-borg, sem sést hefur hér á landi. TJALDBÚÐIRNAR A túninu við Lindarskóga og á Tjaldflöt, austan við barnaskólann reis kjarni þessarar marglitu borgar, en útborgir liennar teygð- ust vítt um skóglendið í hlíðum Laugar- vatnsfjalls. Þetta voru tjöld af ólíkustu stærð og gerð og í öllum regnbogans litum, og þótt ekki væri mikið um skipulögð breið- stræti í borginni, þá var hún falleg og lífleg yfir að líta ofan úr fjallshlíðinni. Rómantíkin settist einnig að á Lanflsmót- inu eins og vænta mátti. Önnur minni borg var reist neðan við nýja leikvanginn, og voru þar tjaldbúðir kepp- enda úr hinum ýmsu landshlutum. Margir keppnihópar höfðu reist falleg og sérkenn- andi hlið fyrir framan tjaldbúðir sínar, og var allt með hinum mesta myndarbrag. í hinni stóru tjaldborg á Laugarvatni, sem reist var í svo mikilli skyndingu, ríkti yfirleitt góður menningarblær. Engin borg getur státað af meiri lífsgleði og æskufjöri en borgin sú, og átti góðviðrið auðvitað sinn þátt í þeirri góðu stemningu, sem þarna ríkti. BAÐST R ÖNDIN Tjaldborg landsmótsins, sem lifði skamma ævi en góða, náði alveg niður að vatninu, og þar átti hún sína baðströnd, hin vin- sælustu og fjölsóttustu sem um getur hér á landi. í brennandi sólarhitanum freistaði vatnið margra mótsgesta. Hinsvegar höfðu ekki allir verið svo forsjálir að taka með sér sundföt. Ýmsir notuðust þess í stað við náttföt og annan léttari klæðnað, en í hita og skemtun dagsins stóðust sumir ekki freistinguna og skelltu sér í vatnið í fötun- um. Haft er eftir einni hnátu, sem kom upp úr votninu í sundblautum fötum: „Uss, þetta gerir ekkert til, maður lendir ekki í svona nokkru nema einu sinni á ævinni'. 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.